Atvinna
Keflavíkurflugvöllur ohf. óskar eftir umsækjendum í sumarstörf.
Slökkviliðið
Starfið felst í almennum slökkvistörfum á Keflavíkurflugvelli. Um er að ræða vaktavinnu. Umsækjendur þurfa að geta hafið störf upp úr miðjum maí n.k. og starfað út septembermánuð.
Hæfniskröfur:
- Hafa góða líkamsburði, vera andlega og líkamlega heilbrigður, reglusamur og háttvís, hafa góða sjón og heyrn, rétta litaskynjun og vera ekki haldinn lofthræðslu eða innilokunarkennd
- Iðnmenntun sem nýtist í starfi eða sambærilega menntun og reynslu
- Æskilegt að hafa lokið 80 stunda fornámi fyrir slökkviliðsmenn
- Æskilegt að hafa aukin ökuréttindi
- Hafa hreint sakavottorð
Flugvernd - Vopnaleit
Starfið felst í vopnaleit og við eftirlit á flughlöðum. Óskað er eftir starfsfólki bæði í hluta- og heilsdagsstörf en um er að ræða vaktavinnu. Umsækjendur þurfa að geta hafið störf fyrir 1. júní n.k.
Hæfniskröfur:
- Góð þjónustulund
- Nákvæm og öguð vinnubrögð
- Hafa gott vald á íslenski og enskri tungu
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Hafa góða sjón og rétta litaskynun
- Hafa hreint sakavottorð
- Aldurstakmark 20 ár
Umsóknum skal skilað rafrænt inn á heimasíðu Keflavíkurflugvallar ohf. fyrir mánudaginn 22. mars n.k. Upplýsingar um störfin veitir Sóley Ragnarsdóttir, starfsmannaþjónusta KEF.
Komur
| Flug Nr. | Frá | Áætlun | Staða | |
|---|---|---|---|---|
| AEU502 | London Gatwick | 13:30 | ||
| AEU902 | Copenhagen | 14:10 | ||
| FI307 | Stockholm Arlanda | 15:30 | ||
| FI205 | Copenhagen | 15:30 | ||
| FI503 | Amsterdam Schiphol | 15:30 | ||
| Allar komur | ||||
Brottfarir
| Flug Nr. | Til | Áætlun | Staða |
|---|---|---|---|
| AEU901 | Copenhagen | 07:00 | Farin 06:55 |
| AEU501 | London Gatwick | 07:00 | Farin 07:05 |
| AEU641 | Budapest Ferihegy | 07:00 | Farin 07:08 |
| FI520 | Frankfurt Main | 07:35 | Farin 07:33 |
| FI306 | Stockholm Arlanda | 07:45 | Farin 07:51 |
| Allar brottfarir | |||


