TáknVeður í Keflavík 22°c 5 m/s

Listaverk

Hér í flugstöðinni eru falleg listaverk eftir hina ýmsu listamenn, íslenska og erlenda. Listaverkin eru bæði staðsett inn í flugstöðinni og fyrir utan. Keflavíkurflugvöllur ohf. er í samstarfi við Listasafn Reykjanesbæjar. Smellið hér til að skoða þau nánar.


Áttir

 
Listaverkið er eftir Steinunni Þórarinsdóttur. Verkið sýnir fjórar manneskjur steyptar í sama mót sem komið er fyrir ofan á súlum úr stuðlabergi.  Þær snúa í höfuðáttirnar og vísa til þess að á þessum stað á Keflavíkurflugvelli liggja vegir til allra átta og um leið eru þær vegvísir. Manneskjurnar eru eins konar vitar sem vísa veginn og sjást víða að á þessu stóra opna svæði, jafnvel þótt fólk sé sitjandi. Farþegar og þeir sem um svæðið fara geta í raun gengið inn í verkið og staðið í því miðju og upplifað áttirnar þannig beint og sjálfan sig sem eins konar kjarna eða miðju verksins. 

Manneskjurnar eru allar steyptar í sama mót úr áli sem tengist lit og efni flugvéla og himinsins.  Þær eru í líkamsstærð og standa á 120 cm háum stuðlabergssúlum, íslensku bergi sem minnir á landið sjálft.  Hæð verksins er því um 3 metrar og er það innan ramma sem er 3x3 metrar að flatarmáli.

Heimasíða Steinunnar: www.steinunnth.com


Regnbogi


Listaverkið er eftir Rúrí. Það stendur framan við flugstöðvarbygginguna spölkorn til norðurs. Verkið teygir sig 24 metra upp til himins, hæsta listaverk á Íslandi. Form þess er gert úr ryðfríu stáli, en litir regnbogans eru myndaðir með ríflega 300 steindum glereiningum.  „Hinn náttúrulegi regnbogi birtist fyrirvaralaust á himni, varir í nokkur andartök, hverfur síðan jafn snögglega og hann birtist. Enginn getur höndlað hann, né heldur nálgast hann. Samt hefur hann ákaflega sterkt gildi í hugum flestra“. Verkið var reist árið 1991.

Heimasíða Rúrí: www.ruri.is


Þotuhreiður

Þotuhreiðrið sýnir stórt egg úr ryðfríu stáli sem vængur þotu er að brjótast út úr eins og ungi sem er að brjótast út úr eggi. Verkið er sérlega táknrænt þar sem það stendur á íslensku grjóti.  Magnús Tómasson, höfundur verksins, segir hugmyndina að Þotuhreiðrinu fyrst hafa kviknað fyrir mörgum árum. „Ég var að vinna seríu um sögu fuglsins. Í henni kemur fyrir lítið hænuegg þar sem út sprettur goggur. Ég úrfærði þessa hugmynd betur og útkoman er Þotuhreiðrið, sem er mitt stærsta verk.“ Þotuhreiðrinu var komið fyrir norðanmegin við flugstöðvarbygginguna í upplýstri tjörn. 


Glerlistaverk

Listaverkin eru tvö og eru eftir Leif Breiðfjörð.  Þau eru staðsett í gluggum í brottfararsal.  Lögun þeirra minnir á flugdreka og þau túlka þrá fólks til að fljúga um leið og þau vísa í verndaranda Íslands.  Á kvöldin eru verkin upplýst.

Heimasíða Leifs Breiðfjörð: http://www.breidfjord.com/


Lágmynd af Leifi Eiríkssyni


Frú Vigdís Finnbogadóttir þáverandi forseti afhjúpaði minnismerki um Leif Eiríksson við vígslu flugstöðvarinnar 14. apríl 1987, en við hann er flugstöðvarbyggingin kennd.  Þetta er lágmynd af styttu Leifs sem stendur á Skólavörðuholti í Reykjavík, á þrístrendum steinstólpa úr íslenskum grásteini.  Myndin sjálf er unnin erlendis en stólpinn, sem er 2,8 metrar á hæð, er unninn í Steinsmiðju S. Helgasonar hf.


Ég bið að heilsa


Listaverkið er eftir Sigurjón Ólafssonar.  Heiti verksins vísar í hið ástsæla ljóð Jónasar Hallgrímssonar, sem hann mun hafa ort í Kaupmannahöfn vorið 1844. Þótt formið sé abstract eru vísanir í myndinni bæði í "fuglinn trúr sem fer með fjaðrabliki háa vegaleysu" og "stúlkuna" heima á Íslandi, sem hann sendi kveðjurnar sínar. Auk hinnar myndrænu fegurðar verksins eiga táknræn gildi þess einnig erindi til mannfjöldans sem er að mætast í Flugstöðinni, heilsast og kveður.

Flugstöð Leifs Eiríkssonar eignaðist verkið árið 1988.

Inspired by Iceland