Reykjanesbær
Hér í flugstöðinni eru falleg listaverk sem eru í eigu Listasafns Reykjanesbæjar. KEF og Listasafn Reykjanesbæjar eru í samstarfi þar sem Listasafnið lánar listaverk og eru þau til sýnis í landgangi flugstöðvarinnar á mismunandi tímum. Hér fyrir neðan eru sýnishorn af þeim listaverkum sem hafa verið til sýnis.
|
|
|
|
Lísa
Olíumálverkið eftir Sigríði Melrós Ólafsdóttur heitir Lísa. Sigríður Melrós hefur haldið einkasýningar ásamt mörgum samsýningum. Hún nam myndlist við Myndlista- og Handíðaskóla Íslands, einnig tók hún kennslufræðiréttindi við Listaháskóla Íslands.
|
|
|
|
|
|
|
Tjörn og Ransý
 Olíumálverkin eftir Karl Jóhann Jónsson heita Tjörn og Ransý. Karl Jóhann hefur haldið einkasýningar ásamt mörgum samsýningum. Hann nam myndlist við Myndlista- og Handíðaskóla Íslands, einnig tók hann kennslufræðiréttindi við Listaháskóla Íslands.
Karl Jóhann notar ljósmyndir sem verkfæri í vinnuferlinu en útkoman er málverk. Karl Jóhann málar gjarnan það fólk sem er í kringum hann, eiginkonu, börn,vini og sjálfan sig en á myndunum er þetta allt annað fólk, í öðrum hlutverkum. Hvert verk sýnir einhvern atburð eða stemmningu sem Karl spinnur upp og sviðsetur, sem virkar þannig að áhorfandinn gæti gleymt sér í að einblína á það sem ekki er sýnt. Í verkum Karls má oft greina beinar og óbeinar vísanir í listasöguna.
|
|
|
|
|
|
|
Hvalur tilfinninganna
Hvalur tilfinninganna er olíumálverk eftir Daða Guðbjörnsson. Daði er einn af þekktustu listamönnum landsins og hefur haldið fjölda sýninga hér heima og erlendis. Hann nam myndlist við Myndlista- og Handíðaskóla Íslands og við Ríkisakademíuna í Amsterdam.
Í texta Kristínar G. Guðnadóttur í sýningarskránni sem gefin er út af þessu tilefni segir m.a.: “Elementin fjögur eða höfuðskepnurnar – vatn, loft, jörð og eldur eru áberandi í nýjum verkum Daða og skapa umgjörð eða leiksvið táknanna í formi landslags eða margræðs myndrýmis.”
|
|
|
|
|
|
|
Erlingur Jónsson
Í ljósmyndaröðinni eftir Arnar Fells er persónuleiki Erlings gerð skil og einnig er til sýnis höfuðmynd Erlings af Vigdísi Finnbogadóttur. Listaverkin eru í brottfararsal flugstöðvarinnar.
Arnar Fells fæddist í Keflavík árið 1980. Ljósmyndun hefur átt hug hans allan frá því að hann var barn. Helstu viðfangsefni hans er að ljósmynda fólk, en umleið er hann mikið fyrir surrealíska og listræna ljósmyndun. Hugmyndir sínar og innblástur sækir hann úr umhverfinu í kring og út frá verkum annarra ljósmyndara sem hann útfærir á sinn eigin hátt.
Ljósmyndasýning Arnars af Erlingi var í tilefni af 75 ára afmæli Erlings.
|
|
|
|
|
|
|
Bátafloti Gríms Karlssonar
Vilborg KE 51
Smíðuð á Ísafirði árið 1954 úr eik, stærð 51 rúmlestir, vél 240 hestöfl GM dísel. Báturinn var tekinn af skrá 20. október 1987. Heimild: Íslensk skip, Jón Björnsson.
Um áratugaskeið sótti Grímur Karlsson sjóinn. Sjórinn og sjómennskan hafa átt hug hans allan. Á sýningunni Bátafloti Gríms Karlssonar eru 87 skipalíkön, frá mörgum tímabilum íslenskrar útgerðarsögu. Sýningin er í Duushúsi, menningar- og listamiðstöð Reykjanesbæjar. KEF fékk tvö líkön að láni og eru þau til sýnis í brottfararsal flugstöðvarinnar.
Keflvíkingur GK 400
Smíðaður í Njarðvík í Reykjanesbæ árið 1940, stærð 70 rúmlestir, vél 180 hestöfl Alpha dísel. Báturinn brann og sökk 80 sjómílur norðvestur af Garðskaga 16. júlí árið1951. Áhöfnin 9 menn, bjargaðist í lítinn léttabát og eftir 19 klukkustundir var þeim bjargað um borð í Skíðblaðni frá Keflavík. Heimild: Íslensk skip, Jón Björnsson.
|
|
|
|
|
|
|
Málverk eftir Björgu Örvar
Náttúrulífsmálarinn Björg Örvar fjallar um kjarna málsins. Hið smæsta og hið stærsta. Alheim og öreind. Listaverkið er án titils og er olíumálverk á striga. Listaverkið var inn í landgangi flugstöðvarinnar seinnihluta ársins 2007. |
|
|