Framkvæmdaráð
|
Eiríkur Ómar Sveinsson
| Starfsheiti: | Framkvæmdastjóri flugvallarsviðs |
|
Eiríkur Ómar er fæddur 1955. Hann útskrifaðist sem loftskeytamaður frá Loftskeytaskóla Íslands vorið 1975. Hann lauk bóklegu námi fyrir einkaflugmannsprófi hjá Flugskólanum hf. árið 1977. Lauk námi í tölvunar-og kerfisfræði ásamt forritun árið 1984. Tók Meistararéttindi í rafeindavirkjun árið 1984. Eiríkur Ómar hóf störf árið 1975 hjá Flugvallarrekstrarsviði Varnarliðsins (Air Operations). Vann sjálfstætt að ýmsum kerfis-,forritunar-og tölvunarverkefnum fyrir ýmsa aðila meðfram aðalstarfi hjá Varnarliðinu. Frá 1986 vann hann sem rekstrarstjóri flugvallarratsjárkerfa Rafeindadeildar varnarliðsins. (Ground Electronics Maint. Division). Árin 1997 til 2006 vann hann sem aðstoðardeildarstjóri Rafeindardeildar varnarliðsins og 2004 til 2008 sem ráðgjafi og verkefnisstjóri á Pristina flugvelli í Kosovo. Árið 2006 var Eiríkur Ómar ráðinn sem framkvæmdastjóri flugvallarsviðs hjá Flugmálastjórn Keflavíkurflugvallar og frá janúar 2009 í sama starfi hjá hinu nýja félagi Keflavíkurflugvelli ohf.
Til baka