Fréttir

Stjórnarmenn í nýstofnuðu opinberu hlutafélagi um sameinaðan rekstur Keflavíkurflugvallar og Flugstoða eru jafnframt nýir stjórnarmenn Keflavíkurflugvallar ohf. Þórólfur Árnason stjórnarfornmaður fundaði með starfsmönnum og kynnti sér starfsemi félagsins ásamt öðrum stjórnarmönnum í síðustu viku.
Opinbert hlutafélag um sameinaðan rekstur opinberu hlutafélaganna Flugstoða og Keflavíkurflugvallar var stofnað 29. janúar s.l. Samgönguráðherra var heimilað með lögum frá Alþingi 21. desember að gangast fyrir stofnun félagsins en því er ætlað að reka alla flugvelli landsins og sjá um uppbyggingu þeirra ásamt tilheyrandi flugstöðvum og mannvirkjum, reka og byggja upp flugleiðsöguþjónustu og annast rekstur starfsemi sem er í beinum tengslum við flugrekstur.
Fjármálaráðherra fer með hlut ríkisins í félaginu en samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra ber ábyrgð á faglegri stefnumótun í samvinnu við stjórnina. Nafn hins nýja félags hefur ekki verið ákveðið en til athugunar er að efna til samkeppni um nafnið.
Sjö manna stjórn var kjörin á stofnfundi félagsins og sjö varamenn. Aðalmenn í stjórn eru Þórólfur Árnason, Arngrímur Jóhannsson, Rannveig Guðmundsdóttir, Arnbjörg Sveinsdóttir, Ásta Rut Jónasdóttir, Ragnar Óskarsson og Jón Norðfjörð. Var Þórólfur Árnason kjörinn formaður stjórnar.
Í framhaldi af stofnun nýja félagins fóru fram hluthafafundir í Flugstoðum ohf. og Keflavíkurflugvelli ohf. og tóku stjórnarmenn nýja félagsins við stjórn þeirra líka til hægðarauka við sameiningu félaganna. Kristján L. Möller samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra þakkaði fráfarandi stjórnarmönnum fyrir vel unnin störf. Rifjaði ráðherrann upp að vel hefði tekist til í báðum tilvikum að hleypa opinberu hlutafélögunum af stokkunum og kvaðst hann bjartsýnn á að sameiningin nú tækist einnig vel.
Þórólfur Árnason kveðst gera ráð fyrir að sameining félaganna gangi í gegn á næstu þremur mánuðum en tímamark samruna miðast við síðastliðin áramót og gerð stofnefnahagsreiknings skal vera lokið 31. mars n.k. Hann segir að innan stjórnarinnar sé góð blanda af fólki með fjölþættan bakgrunn og öflug varastjórn á hliðarlínunni sem muni sinna þessu sameiningarverkefni með stjórninni.
Myndir frá kynningu á starfsemi Keflavíkurflugvallar fyrir nýkjörnum stjórnarmönnum 11. febrúar s.l.











