Fréttir
19.02.2010
Sameinað félag Flugstoða ohf. og Keflavíkurflugvallar ohf. óskar eftir að ráða forstjóra til starfa.
Forstjóri mun hafa með höndum yfirstjórn sameinaðs félags og fara með daglega stjórn fyrirtækisins í umboði stjórnar og í samræmi við samþykkta stefnu. Forstjóri fer með yfirstjórn flugleiðsöguþjónustu, flugvallareksturs, tæknimála og stoðstarfsemi og ber ábyrgð á frekari viðskiptaþróun félagsins í samvinnu við framkvæmdastjóra sviða.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson hjá Hagvangi í síma 520 4700 eða í tölvupósti á netfangi: thorir@hagvangur.is .







