Fréttir
02.03.2010
Farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgaði um 1,7% í febrúar miðað við sama tíma í fyrra, úr 83 þúsund farþegum árið 2009 í 84 þúsund farþega nú. Farþegum til og frá Íslandi fjölgaði um 3% milli ára, en farþegum sem millilenda hér á landi á leið yfir Norður-Atlantshafið fækkaði um tæplega 7%.







