Fréttir
04.03.2010
Félag íslenskra flugumferðarstjóra hefur boð til vinnustöðvunar félagsmanna sinna dagana 10. – 19. mars n.k. náist ekki samningar í fyrirstandandi kjaraviðræðum sem fram fara hjá Ríkissáttasemjara.
Flugumferðarstjórar hyggjast leggja niður störf í fjórar klukkustundir í senn milli klukkan 7 og 11 fyrir hádegi 10., 12., 15., 17. og 19. mars.
Verði af boðaðri vinnustöðvun má búast við að nokkrar truflanir eða breytingar verði á flugi á Keflavíkurflugvelli umrædda daga en farþegum er bent á að leita til flugfélaga sinna um nánari upplýsingar.







