Fréttir
02.06.2010
Farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fækkaði um tæplega 6% í maí miðað við sama tíma í fyrra, úr 132 þúsund farþegum árið 2009 í tæplega 125 þúsund farþega nú. Farþegum til og frá Íslandi fækkaði um 8% milli ára, en farþegum sem millilenda hér á landi á leið yfir Norður-Atlantshafið fjölgaði um tæplega 8%.







