Fréttir
02.06.2010
Þriðjudaginn 1. júní flaug Iceland Express sitt fyrsta flug til Ameríku. Í sumar mun Iceland Express vera með fjögur áætlunarflug í viku frá Keflavíkurflugvelli til New York og tvær ferðir í viku til Winnipeg í Kanada. Samtals mun fyrirtækið bjóða uppá flug til 25 áfangastaða frá Keflavíkurflugvelli í sumar. Sjö ár eru síðan Iceland Express hóf áætlunarflug frá Keflavíkurflugvelli, þá var boðið upp á flug til tveggja áfangastaða, London Stansted og Kaupmannahafnar, á hverju ári síðan þá hefur nýjum áfangastöðum verið bætt við. Í fluginu til New York fengu allir farþegarnir afhent stór rauð epli sem þótti táknræn fyrir áfangastaðinn.







