Fréttir
01.07.2010
Markaðsstofa Suðurnesja hefur tekið yfir rekstur Upplýsingamiðstöðvar ferðamála í Flugstöð Leifs Eiríkssonar af Sandgerðisbæ með samþykki Isavia ohf. og Ferðamálastofu . Fyrir rekur Markaðsstofan Upplýsingamiðstöð Suðurnesja í Reykjanesbæ. Markaðsstofan hefur jafnframt samið við ITA hf. um að halda úti alhliða bókunarþjónustu í tengslum við Upplýsingamiðstöðina í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Á næstu dögum verða gerðar breytingar útliti og starfsaðstöðun við Upplýsingamiðstöðina til að geta sinnt bókunarþjónustunni betur. Með því að bjóða upp á aukna þjónustu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar vonast Markaðsstofan og Isavia ohf. til þess að ferðamenn til landsins verði ánægðari og öruggari um ferðir sínar um Ísland.







