Fréttir
05.07.2010
Farþegafjöldi um Flugstöð Leifs Eiríkssonar jókst um tæplega 12% í júní miðað við sama tíma í fyrra, úr 193 þúsund farþegum árið 2009 í tæplega 217 þúsund farþega nú. Farþegum til og frá Íslandi fjölgaði um rúmlega 4% milli ára, en farþegum sem millilenda hér á landi á leið yfir Norður-Atlantshafið fjölgaði um tæplega 58%.






