Fréttir
Vinningshafi í sumarleik Flugstöðvarinnar hefur verið dreginn út og er það hún Gyða Hlín Skúladóttir Jack sem vann stóra vinninginn. Ferðaleikurinn hefur verið í gangi síðan í maí þar sem farþegar hafa fengið í hendur lukkunúmer í samræmi við kaupgleði hvers og eins og áttu þeir möguleika á því að vinna glæsilegan ferðavinning. Ef verslað var fyrir 5.000 kr. í flugstöðinni fékkst einn þátttökumiði, tveir ef verslað var fyrir 7.000 kr., þrír fyrir 10.000 kr., og svo frv.. Um leið og þeir njóta þess að kaupa tollfrjálsan gæðavarning þá eiga þeir möguleika á að vinna stórglæsilega vinninga í boði Flugstöðvarinnar.
Gyða Hlín hlýtur glæsilega 10 daga ferð til Tyrklands fyrir tvo með fullu fæði frá Vita ferðum í vinning. Keflavíkurflugvöllur og samstarfsaðilar óska henni innilega til hamingju og vona að ferðalagið verði sem ánægjulegast.
Við hvetjum alla til að skrá sig inn á "Fan" síðu Keflavíkurflugvallar á Facebook. Því við ætlum reglulega að vera með skemmtilega leiki og senda heppna vini erlendis. Fylgist einnig áfram með spennandi leikjum og tilboðum á www.kefairport.is
www.facebook.com/kefairport
www.youtube.com/kefairport
www.flickr.com/kefairport
www.twitter.com/kefairport







