TáknVeður í Keflavík 11°c 5 m/s

Endurgreiðsla á vsk

Heimilt er að endurgreiða virðisaukaskatt til (aðila búsettra erlendis) af varningi sem þeir hafa fest kaup á hér á landi að uppfylltum skilyrðum reglugerðar.

Skilyrði endurgreiðslu samkvæmt reglugerð þessari er að kaupandi vörunnar sé með fasta búsetu í öðru landi en á Íslandi. Til sönnunar á fastri búsetu erlendis skal kaupandi leggja fram vegabréf, vottorð Hagstofu Íslands um búsetu eða önnur skilríki sem ótvírætt sanna fasta búsetu í öðru landi. Útlendingar með fasta búsetu hér á landi eiga ekki rétt á endurgreiðslu samkvæmt reglugerð þessari.

Til að endurgreiðsla fáist verður að uppfylla öll eftirtalinna skilyrða:

  1. Kaupandi hafi vöruna á brott með sér úr landi innan þriggja mánaða frá því að kaupin voru gerð.
  2. Kaupverð vörunnar með virðisaukaskatti nemi minnst 4.000 kr.
  3. Vörunni sé framvísað ásamt tilskildum gögnum við brottför.

Heimilt er að endurgreiða virðisaukaskatt af vörum á einum og sama vörureikningi sé kaupverð þeirra samtals 4.000 kr. eða meira ásamt virðisaukaskatti, þó einn eða fleiri munir nái ekki tilskilinni lágmarksfjárhæð.

Við brottför úr landi um alþjóðaflugvöllinn á Keflavíkurflugvelli skal kaupandi framvísa varningi ásamt endurgreiðsluávísun til endurgreiðsluaðila, er leysir hana til sín, enda séu skilyrði reglugerðar þessarar að öðru leyti uppfyllt. Endurgreiðsluaðila er óheimilt að leysa ávísun til sín nema kaupandi sanni með fullnægjandi hætti að hann hafi fasta búsetu erlendis. Ef fjárhæð endurgreiðslu nemur hærri fjárhæð en 5.000 kr. skulu tollyfirvöld hafa staðfest útflutning vöru með áritun á ávísunina.

Landsbanki Íslands í Flugstöð Leifs Eiríkssonar sér um endurgreiðslu virðisaukaskatts, Landsbankinn er staðsettur á annari hæð þegar búið er að fara í gegnum vopnaleit hjá tolli.

Komur

Áætlun Raun Frá Flug Nr. Staða
08:50 09:00 Copenhagen FI201 Staðfest 08:50 
09:20 09:30 Paris Charles De Gaulle FI541 Staðfest 09:20 
09:23 05:50 New York Newark Liberty Intl AEU414 Staðfest 09:23 
10:35 10:50 Oslo Gardermoen SK4787 Staðfest 10:35 
15:00 15:00 London Heathrow FI451  
Allar komur

Brottfarir

Áætlun Raun Til Flug Nr. Staða
07:45 07:25 Frankfurt Main FI520 Farin 07:36 
08:00 07:40 London Heathrow FI450 Farin 07:52 
08:02 07:40 Paris Charles De Gaulle FI542 Farin 07:52 
08:03 07:55 Helsinki Vantaa FI342 Farin 07:53 
08:05 07:45 Copenhagen FI204 Farin 07:56 
Allar brottfarir
Inspired by Iceland