Farangur
Almennar upplýsingar um frágang og merkingar farangurs.
Flutningsaðili má neita fólki að ferðast með meiri farangur en reglur um almennan farangur segja til um. Því er mjög mikilvægt að tilkynna flutningsaðila fyrirfram ef áætlað er að ferðast með umframfarangur. Hægt að taka frá rými fyrir rúmfrekan farangur í farmrými vélarinnar.
Frágangur og merkingar á farangri
Allur farangur sem innrita skal verður að vera vel frágenginn í ferðatöskum eða traustum kössum til að tryggja öruggan flutning og meðhöndlun og nógu sterkur til að standast þrýsting við venjulega farangurshleðslu.
Forðist að pakka verðmætum, brothættum eða viðkvæmum hlutum í innritaðan farangur.
Vinsamlega fjarlægið gamlar farangursmerkingar frá fyrri ferðum. Hvert einstök taska eða kassi verður að vera vel merktur innan sem utan með nafni farþega og áfangastað.
Eftirfarandi eru tenglar fyrir heimasíður Icelandair og Iceland Express sem tilgreina leyfileg mörk á farangri og fleira:
Icelandair - Spurt & svarað
Iceland Express - Spurt & svarað
Farangurstryggingar
Vegna takmarkana á ábyrgð sem tekin er á farangri mælum við með að farþegar tryggi farangur sinn.
Tapað/Fundið
Komur
| Áætlun | Raun | Frá | Flug Nr. | Staða |
|---|---|---|---|---|
| 08:50 | 09:00 | Copenhagen | FI201 | Staðfest 08:50 |
| 09:20 | 09:30 | Paris Charles De Gaulle | FI541 | Staðfest 09:20 |
| 09:23 | 05:50 | New York Newark Liberty Intl | AEU414 | Staðfest 09:23 |
| 10:35 | 10:50 | Oslo Gardermoen | SK4787 | Staðfest 10:35 |
| 15:00 | 15:00 | London Heathrow | FI451 | |
| Allar komur | ||||
Brottfarir
| Áætlun | Raun | Til | Flug Nr. | Staða |
|---|---|---|---|---|
| 07:45 | 07:25 | Frankfurt Main | FI520 | Farin 07:36 |
| 08:00 | 07:40 | London Heathrow | FI450 | Farin 07:52 |
| 08:02 | 07:40 | Paris Charles De Gaulle | FI542 | Farin 07:52 |
| 08:03 | 07:55 | Helsinki Vantaa | FI342 | Farin 07:53 |
| 08:05 | 07:45 | Copenhagen | FI204 | Farin 07:56 |
| Allar brottfarir | ||||

