TáknVeður í Keflavík 12°c 4 m/s

Öryggisreglur

Hvað er innritaður farangur?
Farangur sem er innritaður hjá flugrekenda og fer í lest flugvélar.

Hvað verð ég að gera áður en ég mæti til innritunar í brottfararsal flugstöðvar?
Þegar pakkað er niður fyrir ferðalag ætti að hafa í huga að snyrtitöskum, tannkremi, hárvörum, ilmvatnsglösum, kremi, rakspíra, svitalyktareyði, sápum, raksápu og öðrum sambærilegum hlutum er best fyrir komið í innrituðum farangri.

Muna skal að pakka einnig hlutum í innritunarfarangur sem ekki eru leyfðir í handfarangri. Hlutir eins og skæri, naglaþjalir og vasahnífar verða að fara í innritaðan farangur. Ef slíkir hlutir finnast í handfarangri við öryggisskoðun er farþeganum undantekningarlaust meinað að halda áfram með hlutinn í gegnum öryggishlið.

Hvernig get ég flýtt fyrir öryggisleit?
Vertu tilbúin(n) að sýna öryggisvörðum ferðaskjöl/brottfararspjald og/eða skilríki/vegabréf til skoðunar.

Vertu tilbúin(n) að setja handfarangur í plastbakka við færibandið fyrir framan gegnumlýsingarvél séu þeir fyrir hendi.

Vertu búin(n) að:

  • taka plastpoka með leyfilegum vökvaílátum um úr handfarangri
  • taka fartölvu og önnur stærri rafmagnstæki úr tösku
  • fara úr yfirhöfn og jakka, taka af þér belti og tæma vasa

Þessa hluti skal skima sérstaklega

Hvað gerist ef bannaðir hlutir finnast í handfarangri?
Ef bannaðir hlutir (t.d. oddhvassir hlutir, vökvi í stærri umbúðum en 100 ml eða fleiri en 10 slíkar) finnast við öryggisleit fær farþegi ekki að fara með þá inn fyrir öryggishlið.

Þegar farþegi er kominn í öryggisleit er of seint að koma bönnuðum hlutum fyrir í áður innrituðum farangri. Aðstaða til að geyma bannaða hluti er ekki fyrir hendi í flugstöðvum á Íslandi.

Get ég keypt vökva á brottfararsvæði Flugstöðvarinnar?
Farþegar geta eftir sem áður keypt allan vökva og aðrar vörur innan biðsvæðis flugstöðva Evrópska efnahagssvæðisins, en vörur sem seldar eru á því svæði hafa sætt sérstakri skoðun.

Þarf að innsigla vökva sem keyptur er á brottfararsvæði Flugstöðvarinnar?
Ef flogið er beint á áfangastað frá Íslandi má vera með allan vökva í handfarangri sem keyptur er á biðsvæðinu. Ef farið er í tengiflug skoðið eftirfarandi reglur vandlega:

Flug frá Íslandi
til ríkja innan Evrópska efnahagssvæðisins með tengiflugi.

Vökvi sem keyptur er í verslun eftir að farið er í gegnum flugverndarskoðun, eða um borð í flugvél, skal geymdur í poka sem innsiglaður er í versluninni þar til á áfangastað er komið.

Við öryggisskoðun í því landi sem tengiflug á sér stað í verður að framvísa kvittun sem staðfestir innihald pokans og að keypt hafi verið samadægurs sé þess óskað.

Ef farþegi tekur við innrituðum farangri sínum áður en haldið er áfram í tengiflugi, eða farangur hefur ekki verið innritaður alla leið, er vökvanum best fyrir komið í innritunarfarangri fyrir næsta flug.

Flug frá Íslandi
til Norður-Ameríku (Bandaríkjanna og Kanada) með tengiflugi.

Vökva sem keyptur er í verslun eftir að farið er í gegnum öryggisskoðun, eða um borð í flugvél, er skylt að setja í innritaðan farangur áður en haldið er áfram í tengiflug.

Tækifæri til þess gefst eftir að farþegar hafa farið í gegnum tollskoðun við komuna í flugstöð í Norður-Ameríku (Bandaríkjunum og Kanada).

Flug til Íslands
frá Norður-Ameríku (Bandaríkjunum og Kanada) og öðrum ríkjum utan Evrópska efnahagssvæðisins.

Vökva sem keyptur er áður en farþegi innritar sig í flug skal koma fyrir í innritunarfarangri.

Ekki er heimilt að fara með vökva í handfarangri sem keyptur er í verslunum eftir að farið er í gegnum öryggisskoðun í Norður-Ameríku (Bandaríkjunum og Kanada) og öðrum ríkjum utan Evrópska efnahagssvæðisins inn í flugstöð á Íslandi jafnvel þótt hann sé í innsigluðum umbúðum.

Heimilt er að fara með vökva sem keyptur er um borð í flugvél skráðri í ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins inn í flugstöð á Íslandi ef varan er í innsigluðum poka. Farþegi verður einnig að geta framvísað kvittun sem staðfestir innihald pokans og að keypt hafi verið samdægurs sé þess óskað við öryggiseftirlit.

Athugið að þegar vökvi hefur verið settur í innsiglaða poka af viðkomandi verslun má ekki rjúfa innsiglið á meðan farþegi er staddur í flugstöð eða á ferð í flugvél. Ef farþegi sætir öryggisskoðun áður en komið er út úr flugstöð og innsigli pokans hefur verið rofið er farþega ekki heimilt að fara með vökvann í gegnum öryggiseftirlit.

Hvað má ekki ferðast með?
Sprengiefni, eldfimar gastegundir, eldfima vökva, tærandi efni, eitur og önnur hættuleg efni, geislavirk efni, eyðandi efni, segulmagnaða hluti og svæfingarefni.

Komur

Áætlun Raun Frá Flug Nr. Staða
08:50 09:00 Copenhagen FI201 Staðfest 08:50 
09:15 09:30 Paris Charles De Gaulle FI541 Staðfest 09:15 
09:23 05:50 New York Newark Liberty Intl AEU414 Staðfest 09:23 
10:35 10:50 Oslo Gardermoen SK4787 Staðfest 10:35 
15:00 15:00 London Heathrow FI451  
Allar komur

Brottfarir

Áætlun Raun Til Flug Nr. Staða
08:00 07:40 London Heathrow FI450 Farin 07:52 
08:02 07:40 Paris Charles De Gaulle FI542 Farin 07:52 
08:03 07:55 Helsinki Vantaa FI342 Farin 07:53 
08:05 07:45 Copenhagen FI204 Farin 07:56 
08:10 08:00 Manchester FI436 Farin 08:00 
Allar brottfarir
Inspired by Iceland