Takmörkun á vökva
Spurt og svarað
Hvenær tóku nýju reglurnar gildi?
6. nóvember 2006
Hverjar eru nýju reglurnar?
Farþegum er einungis leyfilegt að hafa takmarkað magn vökva í handfarangri.
Hvað er handfarangur?
Farangur sem farþegum er heimilt að bera um borð í flugvélar.
Hvaða vökva og hversu mikinn vökva má ferðast með í handfarangri?
Vökva má ferðast með í handfarangri að eftirfarandi skilyrðum uppfylltum:
Hver eining umbúða má að hámarki rúma 100 millilítra (1dl) af vökva.
- Allar umbúðirnar verða að rúmast í gegnsæjum eins (1) lítra plastpoka sem hægt er að lokameð plastrennilás.
- Hverjum farþega er heimilt að hafa með sér einn poka.
- Með umbúðum er átt við flöskur, túpur, hylki og annað sem getur innihaldið vökva.
- Gosflöskur og dósir eru flestar stærri en 100 ml (1dl) og eru því ekki leyfðar inn fyrir öryggishlið flugverndar.
Get ég tekið lyf, barnamat eða matvæli í vökvaformi með mér í handfarangri?
Já, eftirfarandi er leyfilegt:
- Lyf merkt notanda í magni sem dugir meðan á flugferð stendur.
- Barnamat.
- Matvæli vegna sérstaks mataræðis.
Farþegi gæti þurft að færa sönnur á innihald óski öryggisverðir eftir því.
Hvað er vökvi?
Allur vökvi, gel, krem, smyrsl, úðaefni, o.s.frv. hvort sem er í flöskum, þrýstibrúsum, túpum eða öðrum umbúðum.
Algengir hlutir sem fólk hefur með sér og flokkast undir vökva eru t.d., gosdrykkir, áfengi, ilmvötn, rakakrem, tannkrem, varagloss, hárlakk, sápur, sjampó.
Má taka drykkjarföng í gegnum öryggisleit?
Engin drykkjarföng eru leyfð umfram það magn og umbúðartærð sem að ofan greinir. Drykkjarföng í fjölbreyttu úrvali fást keypt innan flugverndarsvæðis í flugstöð.
Má taka matvöru í gegnum öryggisleit?
Já, leyfilegt er að taka matvöru í gegnum öryggisleit. Matvara í vökvakenndu formi er leyfð í 100 ml. umbúðum í 1 lítra plastpoka sem hægt er að loka með plastrennilás.
Má taka linsuvökva í gegnum öryggisleit?
Já, leyfilegt er að taka linsuvökva í gegnum öryggisleit að hámarki 100 millilítra (1dl) hver eining í 1 lítra plastpoka sem hægt er að loka með plastrennilás.
Má taka andlitspúður með í gegnum öryggisleit?
Já, allar snyrtivörur sem eru í föstu formi, þar með talið púður og varalitir.
Má taka rafhlöður með í gegnum öryggisleit?
Já.
Get ég keypt snyrtivörur, drykki og vökvakennd matvæli eftir að komið er í gegn um öryggisleit í flugstöðinni?
Já, slíkir vökvar og vökvakennd efni eru seld á biðsvæði flugstöðvarinnar og þau má hafa með um borð í flugvél með ákveðnum takmörkunum sem gilda um framhaldsflug.
