Sjálfsafgreiðslustöðvar
Sjálfsafgreiðsla við innritun einfaldar og flýtir fyrir farþegum
Farþegar geta nú valið um að innrita sig sjálfir á innan við einni mínútu og valið sitt eigið sæti. Það eru 16 sjálfsafgreiðslustöðvar í innritunarsal flugstöðvarinnar fyrir innritun farþega.
Fyrst um sinn eru það Icelandair og SAS flugfélögin sem bjóða farþegum sínum sjálfsafgreiðslu við innritun í öll áætlunarflug. Reynsla erlendis frá sýnir að farþegar taka því fagnandi að sleppa við biðraðir og spara tíma með því að innrita sig sjálfir.
Þegar farþegi hefur innritað sig sjálfur í flug tekur starfsmaður viðkomandi flugfélags við farangri hans á sérstakri hraðleið (Fast Bag Drop-off). Þeir sem engan farangur hafa halda beint upp á brottfararsvæðið á 2. hæð flugstöðvarinnar.
Vinsamlega athugið:
Farþegar með tengiflugi með SAS geta notað sjálfsafgreiðslustöðvar og innritað sig alla leið.

