Búsettir á Íslandi
Ferðabúnaður og annar farangur
Við komu til landsins mega ferðamenn, sem búsettir eru á Íslandi, hafa með sér tollfrjálst þann farangur, t.d. fatnað og annan ferðabúnað, sem þeir fóru með til útlanda.
Ferðamenn mega ennfremur hafa meðferðis tollfrjálst varning sem fenginn er í ferðinni eða í tollfrjálsri verslun hér á landi (við brottför eða heimkomu) fyrir allt að 65.000 kr. miðað við smásöluverð á innkaupsstað. Verðmæti hvers hlutar má þó ekki vera meira en 32.500 kr.; sé verðmæti hlutar meira en 32.500 kr., getur viðkomandi notið tollfríðinda miðað við þá fjárhæð og greitt innflutningsgjöld af því verðmæti sem umfram er.
Börn sem eru yngri ern 12 ára mega hafa tollfrjálst verslunarvörur fyrir 32.500 kr.
Tollfrelsi matvara, þ.m.t. sælgæti, er takmarkað við 18.500 kr. verðmæti og 3 kg þyngd.
Ferðamenn geta ekki framselt rétt sinn til tollfríðinda; tveir eða fleiri ferðamenn geta ekki lagt saman heimildir sínar til tollfrjáls innflutnings, t.d. til að flytja tollfrjálst inn hlut sem er meira en 32.500 kr. að verðmæti.
Áfengi og tóbak
Ferðamenn mega hafa með sér tollfrjálst áfenga drykki og tóbak sem hér segir:
Áfengir drykkir
- 1 lítra af sterku áfengi og 1 lítra af léttvíni eða
- 3 lítra af léttvíni eða
- 1 lítra af sterku áfengi og 6 lítra af bjór eða
- 1,5 lítra af léttvíni og 6 lítra af bjór
Sterkt áfengi telst vera áfengi sem er 21% eða sterkara; léttvín telst vera áfengi, annað en bjór, sem er undir þeim styrkleika.
Tóbak
- 200 vindlinga (1 lengju) eða 250 g af öðru tóbaki
Lágmarksaldur til að flytja inn áfengi er 20 ár og 18 ár til að flytja inn tóbak.
Frekari upplýsingar veita tollyfirvöld á Keflavíkurflugvelli. Sími: 569-1750, netfang: vaktfle@tollur.is
Komur
| Áætlun | Raun | Frá | Flug Nr. | Staða |
|---|---|---|---|---|
| 08:50 | 09:00 | Copenhagen | FI201 | Staðfest 08:50 |
| 09:20 | 09:30 | Paris Charles De Gaulle | FI541 | Staðfest 09:20 |
| 09:23 | 05:50 | New York Newark Liberty Intl | AEU414 | Staðfest 09:23 |
| 10:35 | 10:50 | Oslo Gardermoen | SK4787 | Staðfest 10:35 |
| 15:00 | 15:00 | London Heathrow | FI451 | |
| Allar komur | ||||
Brottfarir
| Áætlun | Raun | Til | Flug Nr. | Staða |
|---|---|---|---|---|
| 07:45 | 07:25 | Frankfurt Main | FI520 | Farin 07:36 |
| 08:00 | 07:40 | London Heathrow | FI450 | Farin 07:52 |
| 08:02 | 07:40 | Paris Charles De Gaulle | FI542 | Farin 07:52 |
| 08:03 | 07:55 | Helsinki Vantaa | FI342 | Farin 07:53 |
| 08:05 | 07:45 | Copenhagen | FI204 | Farin 07:56 |
| Allar brottfarir | ||||

