Fyrir börnin
Skemmtileg leikaðstaða er fyrir börn í flugstöðinni.
Börnin geta sest niður og leikið sér á glæsilegu og rúmgóðu leiksvæði, litað eða lesið bók en einnig eru púsluspil og skemmtilegar þrautir á svæðinu fyrir þau að ráða fram úr. Einnig er hægt að horfa á spennandi og fjölbreytilegt barnaefni í sjónvarpi og stytta biðina eftir flugi sem oft er erfið þeim yngstu.
Einnig eru barnakerrur staðsettar í innritunarsal flugstöðvarinnar sem hugsaðar eru fyrir litlu farþegana sem eru á leið í ferðalag. Kerrurnar eru fyrir börn frá 6 mánaða aldri til 20 kg.
