Landkynningarsvæði
Farþegum á leið til og frá löndum utan Schengen-vegabréfasvæðisins gefst kostur á glæsilegri kynningarmynd um Ísland á landkynningarsvæði flugstöðvarinnar.
Landkynningarsvæðið er á fyrstu hæð í suðurbyggingu flugstöðvarinnar og er samstarfsverkefni Keflavíkurflugvallar ohf. og landkynningarverkefnisins Iceland Naturally. Í upphafi sýningar er líkt og farþegar takist á loft frá flugstöðinni og leggi í flugferð um landið. Þeir upplifa mikla náttúrufegurð og viðáttutilfinningu. Flogið er yfir hálendi Íslands, Þingvallavatn, Eldborg, Breiðafjörð, Norðurland og suðurströndina. Þar gefur að líta mjög óvenjulegt sjónarhorn á landið. Hilmar Örn Hilmarsson samdi áhrifamikla tónlist við myndina en framleiðandi hennar er fyrirtækið Gagarín. Árni Páll Jóhannsson er hönnuður sýningarinnar og Karl Óskarsson annaðist kvikmyndatöku.
Myndbrot úr kynningarmynd um Ísland
Komur
| Áætlun | Raun | Frá | Flug Nr. | Staða |
|---|---|---|---|---|
| 08:50 | 09:00 | Copenhagen | FI201 | Staðfest 08:50 |
| 09:15 | 09:30 | Paris Charles De Gaulle | FI541 | Staðfest 09:15 |
| 09:23 | 05:50 | New York Newark Liberty Intl | AEU414 | Staðfest 09:23 |
| 10:35 | 10:50 | Oslo Gardermoen | SK4787 | Staðfest 10:35 |
| 15:00 | 15:00 | London Heathrow | FI451 | |
| Allar komur | ||||
Brottfarir
| Áætlun | Raun | Til | Flug Nr. | Staða |
|---|---|---|---|---|
| 08:00 | 07:40 | London Heathrow | FI450 | Farin 07:52 |
| 08:02 | 07:40 | Paris Charles De Gaulle | FI542 | Farin 07:52 |
| 08:03 | 07:55 | Helsinki Vantaa | FI342 | Farin 07:53 |
| 08:05 | 07:45 | Copenhagen | FI204 | Farin 07:56 |
| 08:10 | 08:00 | Manchester | FI436 | Farin 08:00 |
| Allar brottfarir | ||||

