Bílastæðahús við Leifstöð, Langtímastæði, Skammtímastæði, Bílaþjónusta, Bílaþrif - Flugstöð Leifs Eiríkssonar
Bílahótel - þjónusta við Leifsstöð
Sími: 421 5566
Netfang: bill@bilahotel.is
Vefsíða: www.bilahotel.is
Bílaþjónusta með fagmennsku í fyrirrúmi
Bílahótel (áður Alex bílahús) var stofnað árið 1993 og hefur síðan þá þjónustað flugfarþega er fara um Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Frá upphafi hefur starfsemin haft það að leiðarljósi að bjóða upp á innigeymslu á bílum fyrir flugfarþega, auk þess sem boðið er upp á öll almenn bílaþrif sem og alla almenna viðhaldsþjónustu á bílum svo sem þjónustuskoðanir, smurþjónustu, dekkjaþjónustu, bifreiðaskoðanir, eldsneytisáfyllingar og í raun alla þjónustu sem snýr að bílum í samstarfi við löggild verkstæði, enda tilvalið að nýta tímann meðan dvalið er erlendis fyrir stórar jafnt sem smáar viðgerðir á bifreiðinni.
Þjónustuferlið er eftirfarandi:
Við brottför:
Bifreið er lagt á skammtímastæðum (P1) næst innritunarsal flugstöðvarinnar. Þegar komið er að gjaldskylduhliði við inngang skammtímastæða er ýtt á hnapp við hliðið, með því móti er hægt að koma bifreið inn á skammtímastæði við brottför án aukakostnaðar.
Mitt á milli innganganna í innritunarsal er sjálfsafgreiðusluborð merkt Bílahótel. Þar er fyllt út verkbeiðni sem sett er í hólf á borðinu ásamt bíllyklinum. Í framhaldi af því nálgast starfsmenn Bílahótels bifreiðina og fara með hana í innigeymslu. Ekki er þörf á að panta þjónustuna fyrirfram, en þó betra að gera það á vefnum www.bilahotel.is.
Við komu:
Við heimkomu er aðstaða á hægri hönd þegar komið er út úr tollinum fyrir bílaþjónustufyrirtæki, þar bíður starfsmaður Bílahótels með lykilinn af bifreiðinni eða lyklinum hefur verið komið fyrir í lyklaboxi. Lykiltölur að boxinu hafa þá verið sendar með SMS í síma þjónustukaupa. Bifreið eiganda bíður á skammtímastæði næst komusal. Sími er í afgreiðslunni, þar sem þjónustukaupi getur náð beinu sambandi við Bílahótel.
Verð
Innifalið í geymslugjaldi er innigeymsla á bifreið, bifreið sótt af skammtímastæði við brottför og afhending á skammtímastæði við heimkomu.
Öll bílastæðagjöld vegna skammtímastæða eru innifalinn í verði.
Verðlista er að finna á heimasíðu Bílahótels:
www.bilahotel.is
Bílahótel er samstarfsaðili Vildarklúbbs Icelandair og fá Vildarklúbbsfélagar vildarpunkta þegar þeir nýta sér þjónustuna.
