Rútur
Airport Express
Airport Express rútan fer af stað á hverjum morgni frá Lækjartorgi, Hafnarstræti 20, samkvæmt áætlun.
Farþegar eru sóttir á helstu hótel eða gistiheimili á höfuðborgarsvæðinu og byrjar pick-up 30 mín fyrir auglýstan brottfaratíma. Farþegar geta einnig komið á söluskrifstofu Airport Express sem staðsett er á Lækjartorgi, Hafnarstræti 20. Ekið er beint frá Lækjartorgi á Keflavíkurflugvöll. Ferðin tekur um það bil 45 mínútur eftir veðri og færð.
Hægt er að bóka í Airport Express rútuna fyrirfram:
Senda tölvupóst á: flug@grayline.is
Hringja í síma: 540 1313
Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðu Airport Express www.airportexpress.is
Flugrútan
Flugrútan hefur för frá Umferðamiðstöðinni BSÍ samkvæmt tímatöflu.
Á leiðinni til Keflavíkurflugvallar eru farþegar teknir upp við Bitabæ í Garðabæ og við Fjörukrána í Hafnarfirði (pantað í síma 562-1011).
Flugrútan fer frá Keflavíkurflugvelli 35-40 mínútum eftir komu hvers farþegaflugs. Farþegar eru beðnir um að fylgjast með brottfarartíma á skjám í flugstöðinni eða leita upplýsinga hjá upplýsingaborði Flugrútunnar sem er staðsett í komusal. Endastöð Flugrútunnar í Reykjavík er á Umferðamiðstöð BSÍ, en á leiðinni er stoppað við Fjörukrána í Hafnarfirði og við Bitabæ í Garðabæ, sé þess óskað við brottför frá Keflavík.
Flugrútan netfang: main@re.is
Heimasíða: www.flugrutan.is
