Veiðibúnaður
Strangar varúðarráðstafanir eru viðhafðar til að hindra óæskilegt smit gróðurs og dýralífs landsins.
Sóttvarnarlæknir búfjársjúkdóma veitir allar nánari upplýsingar um smithættu .
Heimilt að hafa meðferðis til landsins veiðitæki og veiðibúnað sem notaður hefur verið erlendis ef sótthreinsun hefur farið fram áður en búnaðurinn er fluttur inn. Liggi ekki fyrir vottorð erlends yfirvalds um sótthreinsun, fer hún fram hérlendis á kostnað viðkomandi.
Vinsamlega setjið ykkur í samband við Icepark varðandi sótthreinsun veiðibúnaðar við komuna til landsins: icepark@icepark.is eða í síma 425 0444.







