TáknVeður í Keflavík 3°c 10 m/s

Nord


Nord er nýlegur veitingarstaður sem er í stöðugri þróun með þarfir ferðalanga að leiðarljósi.

Nord hefur verið starfræktur frá árinu 2009 og hefur aðal árhersla okkar frá upphafi verið íslenskt hreint og ferskt hráefni, hröð, lipur og góð þjónusta.

Mikil áhersla hefur verið lögð á að koma á móts við þarfir sem flestra og þar að leiðandi hefur matseðilinn verið fjölbreyttur, þannig að allir finni eitthvað við sitt hæfi.

Í morgunmat bjóðum við m.a upp á ferskan appelsínusafa, In Hand morgunverðarbrauð sem saman standa af steiktu eggi, beikoni, mosarella osti og reyktum laxi, og einnig bjóðum við uppá heitar eggjakökur.

Í hádeginu opnum við fyrir heitan mat þar má finna gott úrval af heitum og hollum réttum sjá. www.nordfood.is

Bæði Íslendingar og erlendir ferðamenn eru mikið að leyta eftir íslenskum fiskafurðum og höfum við lagt okkur fram við að vera með afurði frá metnaðarfullum framleiðendum sem skilar sér svo sannarlega í gæðunum hjá okkur. Gaman er að segja frá því að humar pizzan okkar er t.d. einn af vinsælustu réttunum okkar.

Metnaður er að bera matinn fallega fram og það sama má segja um vínið sem er borið fram í fallegum glösum og er sér valið fyrir matinn sem við bjóðum upp á.

Allir eiga að finna sitt uppáhalds vín sem hægt er að njóta í góðum félagsskap.

Ekki má gleyma sívinsælu djúsunum og boostinu okkar sem hefur svo sannarlega slegið í gegn.

Við á Nord bjóðum upp á Illy kaffi sem hægt er að njóta á staðnum og einnig er hægt að taka með, það er einnig hægt að taka allan mat með í brottnámsbökkum frá Nord.

Vertu velkomin á Nord


Sími: 421 5800
Netfang: saeminord@gmail.com
Heimasíða: http://www.nordfood.is

Til baka