TáknVeður í Keflavík 11°c 5 m/s

Bistro Atlantic

Bistro Atlantic er matsölustaður sem staðsettur er í brottfararsal og byggir á fjölbreyttu úrvali veitinga, úr besta mögulega hráefni, þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Hönnun Bistro Atlantic byggist á sjálfsafgreiðslu þar sem viðskiptavinir afgreiða sig sjálfir með því að velja sér mat og drykk á bakka. Á matseðlinum eru m.a. smáréttir, heitir og kaldir réttir sem og danskt smørrebrød, morgunmatur og fleira. IGS Veitingar sem reka Panorama Bar og veitingastaðinn Bistro Atlantic í flugstöðinni bjóða upp á móttökur fyrir hópa. Hvort sem um er að ræða mat og drykk, kaffi og kökur, eða einungis að skála saman. Tilvalið fyrir saumaklúbbinn, vinnufélagana, árshátíðarhópinn eða aðra hópa að byrja ferðalagið á góðum veitingum í notalegu umhverfi. Nánari upplýsingar eru veittar í síma 425 0249.

Sími: 425 0249
Netfang: igsveitingar@igs.is
Heimasíða: http://www.igsveitingar.is

Til baka