TáknVeður í Keflavík 6°c 11 m/s

Kaffitár

Kaffitár er staðsett á tveimur stöðum í flugstöðinni, í brottfararsal fyrir farþega og við innritunar- og komusal. Kaffitár býður upp á kaffidrykki sem fyrirtækið er þekkt fyrir s.s. expressó, cappuccino, latte, macciato, auk þess sem í boði eru safar, vatn og aðrar sambærilegar drykkjarvörur ásamt brauði og meðlæti. Einnig eru til sölu smávörur sem tengjast kaffi og kaffiuppáhellingu. Taktu kaffipakka með í flugið og ferðalagið.

Kaffihúsið við innritunar- og komusalinn er fyrir alla gesti sem eiga erindi í flugstöðina. Þar er boðið upp á áfengi, sem og léttvín og bjór sem er nýjung hjá Kaffitári. Aðaláherslan er samt einsog áður á fullkomna kaffidrykki og gott meðlæti, brauð og kökur. Afgreiðslutíminn er frá klukkan 5:30 á morgnana til 17:00 og frá 21:00 á kvöldin til 01:00

Pelé er kominn til landsins - fáanlegur á kaffihúsi Kaffitárs við innritunar- og komusal á 1.hæð í Flugstöð Leifs Eiríkssonar

Nýjung í vöruframboði hjá Kaffitár í Flugstöð Leifs Eiríkssonar er Pelésem fáanlegur er á kaffihúsi Kaffitárs við innritunar- og komusal á 1.hæð flugstövðarinnar. Kaffitár er með þessu að bjóða upp á fyrsta íslenska kaffibjórinn sem framleiddur er hérlendis. Bjórinn sem hefur fengið nafnið Pelé er bruggaður í brugghúsinu Ölvisholti en kaffið sem gefur honum hinn einstaka bragðkeim er frá hinu margverðlaunaða framleiðslufyrirtæki Daterra í Brasilíu. Kaffibaunirnar sem gefa bjórnum bragðið koma úr heimahéraði Edson Arantes Do Nascimento, sem var betur þekktur sem knattspyrnugoðið Pelé.

Bjórinn er mildur og mátulega sætur kaffikeimur í munni fer frábærlega við hina mátulegu beiskju sem bjór hefur jafnan í eftirbragði.

Sími: 425 0730
Netfang: kaffitar@kaffitar.is
Heimasíða: http://www.kaffitar.is

Til baka