|
Verið velkomin í fríið.
Okkur í flugstöðinni er mikið í mun að þér líði vel hjá okkur og ferðalag þitt verði skemmtilegt frá A-Ö. Þar af leiðandi gerum við okkar besta til að þjóna þér á fyrstu stigum ferðalagsins. Við reynum eftir fremsta megni að hafa allt sem þú þarft til taks, hvort sem það er matur, fatnaður, fylgihlutir eða aðrar vörur. Vissir þú að í stærstu þjónustukönnun í heiminum fyrir flugvelli, sem er gerð af ACI, þá er Keflavíkurflugvöllur í 1.-2. sæti yfir bestu flugvelli í Evrópu. Þetta staðfestir að Íslendingar mega vera stoltir af sínum alþjóðlega flugvelli.
|