|
Styrktarsjóður Keflavíkurflugvallar veitir styrki til samfélagsverkefna
Keflavíkurflugvöllur ohf. og dótturfélag þess Fríhöfnin ehf. hafa styrkt margvísleg metnaðarfull samfélagsverkefni á liðnum árum. Til að skerpa frekar á þessum málaflokki stofnaði félagið Styrktarsjóð Keflavíkurflugvallar ohf. fyrr á þessu ári með áherslu á forvarnarverkefni fyrir ungmenni, líknarmál, góðgerðarmál og umhverfismál.
Auglýst var eftir umsóknum um styrki s.l. haust og bárust margar mjög verðugar umsóknir. Tíu verkefni voru valin að þessu sinni eftir ítarlega athugun í samræmi við starfsreglur sjóðsins. Við val á styrkþegum er horft til eðlis viðkomandi verkefnis, hversu margir muni njóta góðs af, fjölda styrkja í hverjum málefnaflokki og byggðarlagi auk þess sem áhersla er lögð á nýjungar í verkefnavali. Á heimasíðu okkar getur þú séð hverjir hlutu styrki frá okkur á þessu ári.
|