24. desember

Kertasníkir er mættur, sveinkinn síðasti, en síðasti vinningshafinn er einmitt sá heppnasti. 

HJÁLMAR BALDURSSON
Við óskum Hjálmari til hamingju með stóra vinninginn, flugmiða fyrir fjóra til Evrópu frá Iceland Express.   

Jólaleikur Flugstöðvarinnar og Iceland Express hefur verið á fullum snúningi í desember og daglega hafa íslensku jólasveinirnir aðstoðað við að draga heppna þátttakendur úr pottinum. Við þökkum þeim sem tóku þátt í þessum skemmtilega leik og óskum öllum vinningshöfum til hamingju. 
 

Gleðileg jól og tvær góðar ástæður
 
Núna erum við búin að draga út stóra vinninginn í jólaleiknum. Þeir sem ekki unnu vinning þurfa ekki að kvíða. Það eru nefnilega tvær góðar ástæður, sú fyrsta er að jólin eru að koma og allur góði maturinn og samveran með okkar nánustu bíður okkar. Númer tvö, við hjá flugstöðinni ætlum ekkert að hætta að gefa utanlandsferðir. Okkur finnst svo ofsalega gaman að gleðja og gefa ferðir út í heim. Þannig að vertu í sambandi við okkur, það margborgar sig :)

Fylgstu með á www.kefairport.is
eða í gegnum póstlistann okkar.
 
Keflavíkurflugvöllur óskar þér gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Þökkum samskiptin á árinu sem er að líða og hlökkum til að sjá þig á nýju ári.

 
www.kefairport.is
 
Kæru þátttakendur í jólaleik Iceland Express og Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar 
 
Starfsfólk Iceland Express til sjávar og sveita, auk þeirra sem eru í háloftunum að sjálfsögðu, óskar þér gleðilegra jóla og vonar að þú hafir það gott yfir hátíðarnar. 
 
Megi nýtt ár verða þér farsælt og kryddað með skemmtilegum ferðum á framandi slóðir.

Með hátíðarkveðju frá Iceland Express
 
Afskrá mig af póstlista