Sumarstarf 2025 – Aðstoðarfólk í mötuneyti
Við leitum að þjónustulunduðum og glaðlyndum einstaklingum til að sinna þjónustu við flugfélög, farþega, starfsfólk og aðra viðskiptafélaga okkar á Keflavíkurflugvelli. Óskað er eftir snyrtilegum einstaklingum 18 ára og eldri sem hafa áhuga á að vinna í fyrirtæki þar sem umhverfi, öryggi og framúrskarandi þjónusta eru höfð að leiðarljósi. Um er að ræða bæði hluta- og fullt starf næstkomandi sumar.
Gestir okkar og viðskiptafélagar eru bæði íslenskir og erlendir og því gerum við kröfu um góða tungumálafærni í öllum störfum.
Sumarstörf á flugvallarsvæðinu eru bæði fjölbreytt og krefjandi en við kappkostum að veita starfsfólki gott vinnuumhverfi og góðan starfsanda. Við bjóðum upp á fyrsta flokks mötuneyti og allt starfsfólk fær aðgang að líkamsræktarstöðvum meðan það er í starfi hjá Isavia.
Allir umsækjendur þurfa að standast bakgrunnsathugun lögreglu og framvísa hreinu sakarvottorði íslensku sem erlendu þar sem við á, í lokaskrefi umsóknarferilsins. Þá þurfa þeir sem fá boð um starf að geta sótt undirbúningsnámskeið áður en þeir hefja störf og standast próf í lok námskeiðsins. Tímalengd námskeiða fer eftir eðli starfa.
Þetta er umsókn um starf aðstoðarfólks í mötuneyti
Isavia býður upp á glæsilegt mötuneyti fyrir starfsfólk fyrirtækisins. Við leitum nú að metnaðarfullum og þjónustulunduðum einstaklingi til starfa við aðstoð í eldhúsi. Við leitum að einstaklingi sem er jákvæður, góður í mannlegum samskiptum og hefur metnað til að byggja upp glæsilegt mötuneyti á fjölbreyttum og líflegum vinnustað. Aðstoðarfólk í eldhúsi annast frágang í mötuneyti, uppþvott og þrif ásamt því að aðstoða matreiðslumann við undirbúning og framreiðslu. Um tvennskonar fyrirkomulag er að ræða, annars vegar er unnið samkvæmt 2-2-3 vaktakerfi. Vinnutími er frá 10-22. Hins vegar 70% starf á 2-2-3 vaktarkerfi. Vinnutími er þá 07:30-15:30.
Helstu verkefni er að annast matreiðslu í samráði við matreiðslumann, sjá um tilfallandi innkaup, aðstoða við undirbúning funda m.t.t. veitinga, annast frágang, uppvask og dagleg þrif á eldhúsi og matsal og taka á móti vörum og ganga frá á lager.
Æskileg hæfni er áhugi á fjölbreyttri og hollri matargerð , snyrtimennska, rík þjónustulund, sjálfstæði, sveigjanleiki í samskiptum og skipulögð vinnubrögð.
Úrvinnsla umsókna mun hefjast um leið og þær berast og byrjað verður að ráða í störfin áður en umsóknarfrestur rennur út. Við hvetjum því áhugasama einstaklinga, án tillits til kyns og uppruna til að sækja um sem allra fyrst.
Nánari upplýsingar um Isavia má finna hér á heimasíðu okkar.
Frekari upplýsingar um störfin eða umsóknarferlið veita mannauðsráðgjafar Isavia á netfanginu [email protected]