Sumarstarf 2025 - Eftirlit
Við leitum að þjónustulunduðum og glaðlyndum einstaklingum til að sinna þjónustu við flugfélög, farþega, starfsfólk og aðra viðskiptafélaga okkar á Keflavíkurflugvelli. Óskað er eftir snyrtilegum einstaklingum 20 ára og eldri sem hafa áhuga á að vinna í fyrirtæki þar sem umhverfi, öryggi og framúrskarandi þjónusta eru höfð að leiðarljósi. Um er að ræða bæði heilsdagsstörf næstkomandi sumar.
Gestir okkar og viðskiptafélagar eru bæði íslenskir og erlendir og því gerum við kröfu um góða tungumálafærni í öllum störfum.
Sumarstörf á flugvallarsvæðinu eru bæði fjölbreytt og krefjandi en við kappkostum að veita starfsfólki gott vinnuumhverfi og góðan starfsanda. Við bjóðum upp á fyrsta flokks mötuneyti og allt starfsfólk fær aðgang að líkamsræktarstöðvum meðan það er í starfi hjá Isavia.
Allir umsækjendur þurfa að standast bakgrunnsathugun lögreglu og framvísa hreinu sakarvottorði í lokaskrefi umsóknarferilsins. Þá þurfa þeir sem fá boð um starf að geta sótt undirbúningsnámskeið áður en þeir hefja störf og standast próf í lok námskeiðsins. Tímalengd námskeiða fer eftir eðli starfa. Þeir sem vinna í Eftirliti þurfa að hafa bílpróf.
Þetta er umsókn um starf í eftirliti
Starfsfólk Eftirlitsdeildar ber ábyrgð á að tryggja öryggi og vernd starfsfólks, farþega og starfseminnar í heild sinni á öllum svæðum Keflavíkurflugvallar. Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt, því má skipta í þrjá megin flokka:
Eftirlit
Starfsfólk okkar hefur mikla þekkingu á öryggis- og flugverndarráðstöfunum. Eftirliti er sinnt á bifreiðum og með viðveru innan bygginga eða í stjórnstöð þar sem fylgst er með eftirlitskerfum.
Ógnir og viðbrögð
Starfsfólk okkar er þjálfað til þess að bregðast við ýmsum aðstæðum sem geta komið upp á flugvellinum. Deildin hefur mikilvægt hlutverk í viðbragðsáætlunum sem snýr að því að tryggja og undirbúa komu neyðarviðbragðsaðila inn á athafnasvæðin.
Fylgdir og verkefni:
Starfsfólk okkar er framúrskarandi í þjónustu við farþega, starfsfólk og aðra hagaðila flugvallarins. Deildin sér um að skipuleggja og framkvæma fylgdir og vaktanir fyrir aðila í stórum og smáum verkefnum víðsvegar um flugvöllinn.
Við leggjum áherslu á að starfsfólk okkar styðji vel við hvert annað og myndi þannig sterka liðsheild sem tekst á við starfið af heilum hug.
Ef þú ert einstaklingur sem tileinkar sér frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð, samviskusemi og jákvæðni, smellpassar þú í hópinn okkar.
Úrvinnsla umsókna mun hefjast um leið og þær berast og byrjað verður að ráða í störfin áður en umsóknarfrestur rennur út. Við hvetjum því áhugasama einstaklinga til að sækja um sem allra fyrst.
Nánari upplýsingar um Isavia má finna hér á heimasíðu okkar.
Frekari upplýsingar um störfin eða umsóknarferlið veita mannauðsráðgjafar Isavia á netfanginu [email protected]