Sumarstarf 2025 - Farþegaþjónusta
Við leitum að glaðlyndum einstaklingum með ríka þjónustulund til að sinna þjónustu við flugfélög, farþega, starfsfólk og aðra viðskiptafélaga okkar á Keflavíkurflugvelli. Óskað er eftir snyrtilegum einstaklingum 20 ára og eldri sem hafa áhuga á að vinna í fyrirtæki þar sem umhverfi, öryggi og framúrskarandi þjónusta eru höfð að leiðarljósi. Um er að ræða bæði hluta- og heilsdagsstörf næstkomandi sumar.
Gestir okkar og viðskiptafélagar eru bæði íslenskir og erlendir og því gerum við kröfu um góða tungumálafærni í öllum störfum.
Sumarstörf á flugvallarsvæðinu eru bæði fjölbreytt og krefjandi en við kappkostum að veita starfsfólki gott vinnuumhverfi og góðan starfsanda. Við bjóðum upp á fyrsta flokks mötuneyti og allt starfsfólk fær aðgang að líkamsræktarstöðvum meðan það er í starfi hjá Isavia.
Allir umsækjendur þurfa að standast bakgrunnsathugun lögreglu og framvísa hreinu sakarvottorði í lokaskrefi umsóknarferilsins. Þá þurfa þeir sem fá boð um starf að geta sótt undirbúningsnámskeið áður en þeir hefja störf og standast próf í lok námskeiðsins. Tímalengd námskeiða fer eftir eðli starfa.
Þetta er umsókn um starf í farþegaþjónustu
Þjónustufulltrúar í farþegaþjónustu hafa það meginhlutverk að tryggja fötluðum og hreyfihömluðum farþegum þá aðstoð sem þeir þurfa, hvort sem er við komu þeirra til landsins eða við brottför. Um er að ræða svokallaða PRM þjónustu en PRM stendur fyrir „Passenger with Reduced Mobility“. Þar að auki sinnir starfsfólk deildarinnar m.a. almennri upplýsingagjöf til farþega, mannar upplýsinga- og PRM móttökuborð í innritunarsal og stýrir flæði fólks innan flugstöðvarinnar þar sem þess er þörf, þá einna helst við vegabréfaeftirlit og í innritunarsal.
Um er að ræða skemmtilegt og fjölbreytt starf sem krefst lipurðar í mannlegum samskiptum og frumkvæði og sjálfstæðis í vinnubrögðum.
Þegar fólk hefur störf í farþegaþjónustu situr það fjögra daga námskeið.
Í farþegaþjónustunni er unnið á 5-5-4 vöktum en nánari upplýsingar má finna um það hér.
Úrvinnsla umsókna mun hefjast um leið og þær berast og byrjað verður að ráða í störfin áður en umsóknarfrestur rennur út. Við hvetjum því áhugasama einstaklinga, án tillits til kyns og uppruna til að sækja um sem allra fyrst.
Nánari upplýsingar um Isavia má finna hér á heimasíðu okkar.
Frekari upplýsingar um störfin eða umsóknarferlið veita mannauðsráðgjafar Isavia á netfanginu [email protected]