Sumarstarf 2025- Flugvallarþjónusta
Við leitum að þjónustulunduðum og glaðlyndum einstaklingum til að sinna þjónustu við flugfélög, farþega, starfsfólk og aðra viðskiptafélaga okkar á Keflavíkurflugvelli. Óskað er eftir snyrtilegum einstaklingum 18 ára og eldri sem hafa áhuga á að vinna í fyrirtæki þar sem umhverfi, öryggi og framúrskarandi þjónusta eru höfð að leiðarljósi. Um er að ræða heilsdagsstörf næstkomandi sumar.
Gestir okkar og viðskiptafélagar eru bæði íslenskir og erlendir og því gerum við kröfu um góða tungumálafærni í öllum störfum.
Sumarstörf á flugvallarsvæðinu eru bæði fjölbreytt og krefjandi en við kappkostum að veita starfsfólki gott vinnuumhverfi og góðan starfsanda. Við bjóðum upp á fyrsta flokks mötuneyti og allt starfsfólk fær aðgang að líkamsræktarstöðvum meðan það er í starfi hjá Isavia.
Allir umsækjendur þurfa að standast bakgrunnsathugun lögreglu og framvísa hreinu sakarvottorði í lokaskrefi umsóknarferilsins. Þá þurfa þeir sem fá boð um starf að geta sótt undirbúningsnámskeið áður en þeir hefja störf og standast próf í lok námskeiðsins. Tímalengd námskeiða fer eftir eðli starfa.
Þetta er umsókn um sumarstarf í flugvallarþjónustu
Flugvallarþjónusta á Keflavíkurflugvelli sinnir rekstri og eftirliti með flugbrautum, flugvallarmannvirkjum og umhverfi á vallarsvæði flugvallarins sem og björgunar- og slökkviþjónustu. Í sumar leitum við að liðsauka við að sinna umhirðu og viðhaldi á flugvallarsvæði. Kostur er að umsækjendur hafi gott verkvit, hafi drifkraft og geti unnið sjálfstætt. Bílpróf er skilyrði. Vinnutími er virka daga 8-16.
Nánari upplýsingar um Isavia má finna hér á heimasíðu okkar.
Frekari upplýsingar um störfin eða umsóknarferlið veita mannauðsráðgjafar Isavia á netfanginu [email protected]