Sumarstarf 2025 - Gátstöðvar
Við leitum að þjónustulunduðum og glaðlyndum einstaklingum til að sinna þjónustu við flugfélög, farþega, starfsfólk og aðra viðskiptafélaga okkar á Keflavíkurflugvelli. Óskað er eftir snyrtilegum einstaklingum 20 ára og eldri sem hafa áhuga á að vinna í fyrirtæki þar sem umhverfi, öryggi og framúrskarandi þjónusta eru höfð að leiðarljósi. Um er að ræða bæði hluta- og fullt starf næstkomandi sumar.
Gestir okkar og viðskiptafélagar eru bæði íslenskir og erlendir og því gerum við kröfu um góða tungumálafærni í öllum störfum.
Sumarstörf á flugvallarsvæðinu eru bæði fjölbreytt og krefjandi en við kappkostum að veita starfsfólki gott vinnuumhverfi og góðan starfsanda. Við bjóðum upp á fyrsta flokks mötuneyti og allt starfsfólk fær aðgang að líkamsræktarstöðvum meðan það er í starfi hjá Isavia.
Allir umsækjendur þurfa að standast bakgrunnsathugun lögreglu og framvísa hreinu sakarvottorði í lokaskrefi umsóknarferilsins. Þá þurfa þeir sem fá boð um starf að geta sótt undirbúningsnámskeið áður en þeir hefja störf og standast próf í lok námskeiðsins. Tímalengd námskeiða fer eftir eðli starfa.
Þetta er umsókn um starf við Gátstöðvar
Gátstöðvar er öryggisleit annarra en farþega á Keflavíkurflugvelli. Í gegnum gátstöðvar fara allir þeir sem starfa innan haftasvæðis, hvort sem það er starfsfólk Isavia, annarra fyrirtækja á flugvallarsvæðinu eða verktakar. Einnig sinnir starfsfólk í gátstöðvum öryggisleit birgða og ökutækja sem fara inn á haftasvæði flugvallarsvæðisins. Starfsfólk gátstöðva er í daglegum samskiptum við starfsfólk og viðskiptafélaga okkar á flugvellinum og sinnir mikilvægu öryggis- og þjónustuhlutverki.
Þeir sem hefja störf í gátstöðvum þurfa að sitja námskeið í flugvernd þar sem hluti námskeiðsins er rafrænt en stór hluti líka verklegur. Mikilvægt er að þeir sem starfa í gátstöðvum séu vandvirkir og nákvæmir ásamt því að hafa góða hæfni í mannlegum samskiptum og mikla þjónustulund. Þeir sem vinna í gátstöðvum þurfa að hafa bílpróf. Í gátstöðvum er unnið á óskavöktum. Úrvinnsla umsókna mun hefjast um leið og þær berast og byrjað verður að ráða í störfin áður en umsóknarfrestur rennur út. Við hvetjum því áhugasama einstaklinga, án tillits til kyns og uppruna til að sækja um sem allra fyrst.
Nánari upplýsingar um Isavia má finna hér á heimasíðu okkar.
Frekari upplýsingar um störfin eða umsóknarferlið veita mannauðsráðgjafar Isavia á netfanginu [email protected]