Sumarstarf 2025 - Öryggisleit
Við leitum að þjónustulunduðum og glaðlyndum einstaklingum til að sinna þjónustu við farþega, starfsfólk og aðra viðskiptafélaga okkar á Keflavíkurflugvelli. Óskað er eftir snyrtilegum einstaklingum 20 ára og eldri sem hafa áhuga á að vinna í fyrirtæki þar sem umhverfi, öryggi og framúrskarandi þjónusta eru höfð að leiðarljósi. Um er að ræða bæði hluta- og heilsdagsstörf næstkomandi sumar.
Gestir okkar og viðskiptafélagar eru bæði íslenskir og erlendir og því gerum við kröfu um góða tungumálafærni í öllum störfum.
Sumarstörf á flugvallarsvæðinu eru bæði fjölbreytt og krefjandi en við kappkostum að veita starfsfólki gott vinnuumhverfi og góðan starfsanda. Við bjóðum upp á fyrsta flokks mötuneyti og allt starfsfólk fær aðgang að líkamsræktarstöðvum meðan það er í starfi hjá Isavia.
Allir umsækjendur þurfa að standast bakgrunnsathugun lögreglu og framvísa hreinu sakarvottorði í lokaskrefi umsóknarferilsins. Þá þurfa þeir sem fá boð um starf að geta sótt undirbúningsnámskeið áður en þeir hefja störf og standast próf í lok námskeiðsins. Tímalengd námskeiða fer eftir eðli starfa.
Þetta er umsókn um starf í öryggisleit
Í öryggisleit Keflavíkurflugvallar vinna að jafnaði 160 einstaklingar við öryggisleit farþega og skimun farangurs. Í gegnum öryggisleit fara allir farþegar þegar þeir eru á leið erlendis. Starfsfólk öryggisleitar er í samskiptum við alla okkar frábæru farþega og sinna því mikilvæga hlutverki að þjónusta þá og tryggja öryggi þeirra. Starfsfólk í öryggisleit gegnir því mikilvægu öryggis- og þjónustuhlutverki og þeim ber að fylgja lögum og reglugerðum í sínum störfum. Í þessu starfi er því gott að hafa góða hæfni í mannlegum samskiptum og hafa nákvæm og öguð vinnubrögð.
Allir sem hefja störf í öryggisleit þurfa að sitja námskeið í flugvernd þar sem hluti þess er á rafrænu formi en stór hluti er verklegt. Í öryggisleit er unnið samkvæmt óskavaktakerfi.
Úrvinnsla umsókna mun hefjast um leið og þær berast og byrjað verður að ráða í störfin áður en umsóknarfrestur rennur út. Við hvetjum því áhugasama einstaklinga, án tillits til kyns og uppruna til að sækja um sem allra fyrst.
Nánari upplýsingar um Isavia má finna hér á heimasíðu okkar.
Frekari upplýsingar um störfin eða umsóknarferlið veita mannauðsráðgjafar Isavia á netfanginu [email protected]