Sumarstarf 2025 - Þjónustufulltrúi í kerrusöfnun
Við leitum að glaðlyndum einstaklingum með ríka þjónustulund til að sinna þjónustu við flugfélög, farþega, starfsfólk og aðra viðskiptafélaga okkar á Keflavíkurflugvelli. Óskað er eftir snyrtilegum einstaklingum sem hafa áhuga á að vinna í fyrirtæki þar sem umhverfi, öryggi og framúrskarandi þjónusta eru höfð að leiðarljósi. Um er að ræða heilsdagsstörf næstkomandi sumar.
Gestir okkar og viðskiptafélagar eru bæði íslenskir og erlendir og því gerum við kröfu um góða tungumálafærni í öllum störfum.
Sumarstörf á flugvallarsvæðinu eru bæði fjölbreytt og krefjandi en við kappkostum að veita starfsfólki gott vinnuumhverfi og góðan starfsanda. Við bjóðum upp á fyrsta flokks mötuneyti og allt starfsfólk fær aðgang að líkamsræktarstöðvum meðan það er í starfi hjá Isavia.
Allir umsækjendur þurfa að standast bakgrunnsathugun lögreglu og framvísa hreinu sakarvottorði í lokaskrefi umsóknarferilsins. Þá þurfa þeir sem fá boð um starf að geta sótt undirbúningsnámskeið áður en þeir hefja störf og standast próf í lok námskeiðsins. Tímalengd námskeiða fer eftir eðli starfa.
Þetta er umsókn um starf þjónustufulltrúa í kerrusöfnun
Þjónustufulltrúar í kerrusöfnun starfa innan farþegaþjónustu en þeirra meginverkefni er að safna saman farangurskerrum, barnakerrum, hjólastólum og innkaupakörfum í og við flugstöðina og skila þeim á viðeigandi söfnunarstaði. Einnig felur þetta hlutverk í sér sótthreinsun á veiðibúnaði og mönnunar á upplýsingaborði. Þar er sinnt almennri upplýsingagjöf til farþega.
Um er að ræða skemmtilegt og fjölbreytt starf sem krefst lipurðar í mannlegum samskiptum, frumkvæði og sjálfstæðis í vinnubrögðum.
Þjónustufulltrúar farþegaþjónustu vinna samkvæmt 5-5-4 vaktakerfi á 12 tíma vöktum.
Úrvinnsla umsókna mun hefjast um leið og þær berast og byrjað verður að ráða í störfin áður en umsóknarfrestur rennur út. Við hvetjum því áhugasama einstaklinga, án tillits til kyns og uppruna, til að sækja um sem allra fyrst.
Nánari upplýsingar um Isavia má finna á heimasíðu okkar.
Frekari upplýsingar um störfin eða umsóknarferlið veita mannauðsráðgjafar Isavia á netfanginu [email protected]