Sumarstarf 2025 – Umsjónamenn eigna og búnaðar
Við leitum að þjónustulunduðum, ábyrgum og úrræðagóðum einstaklingum til að sinna störfum umsjónarmanna eigna og búnaðar á Keflavíkurflugvelli. Óskað er eftir snyrtilegum einstaklingum 20 ára og eldri sem hafa áhuga á að vinna í fyrirtæki þar sem umhverfi, öryggi og framúrskarandi þjónusta eru höfð að leiðarljósi. Um er að ræða bæði hluta- og fullt starf næstkomandi sumar.
Gestir okkar og viðskiptafélagar eru bæði íslenskir og erlendir og því gerum við kröfu um góða tungumálafærni í öllum störfum.
Sumarstörf á flugvallarsvæðinu eru bæði fjölbreytt og krefjandi en við kappkostum að veita starfsfólki gott vinnuumhverfi og góðan starfsanda. Við bjóðum upp á fyrsta flokks mötuneyti og allt starfsfólk fær aðgang að líkamsræktarstöðvum meðan það er í starfi hjá Isavia.
Allir umsækjendur þurfa að standast bakgrunnsathugun lögreglu og framvísa hreinu sakarvottorði íslensku sem erlendu þar sem við á, í lokaskrefi umsóknarferilsins. Þá þurfa þeir sem fá boð um starf að geta sótt undirbúningsnámskeið áður en þeir hefja störf og standast próf í lok námskeiðsins. Tímalengd námskeiða fer eftir eðli starfa.
Þetta er umsókn um starf umsjónamanna eigna og búnaðar
Isavia leitar að ábyrgum og úrræðagóðum einstaklingum til að sinna störfum umsjónarmanna eigna og búnaðar á Keflavíkurflugvelli í sumar. Helstu verkefni felast í eftirliti með rekstri og ásýnd og umhverfi Keflavíkurflugvallar, viðbrögð vegna bilana eða annarra rekstrarfrávika sem og samskipti við hagaðila og deildir innan Isavia. Um er að ræða sumarstarf í vaktavinnu. Nám í iðnmenntun eða sambærileg reynsla er kostur. Um er að ræða fullt starf, en kostur ef umsækjendur geta hafið þjálfun og sinnt mögulegum útköllum á næstu vikum eða mánuðum, t.d. meðfram námi.
Úrvinnsla umsókna mun hefjast um leið og þær berast og byrjað verður að ráða í störfin áður en umsóknarfrestur rennur út. Við hvetjum því áhugasama einstaklinga, án tillits til kyns og uppruna til að sækja um sem allra fyrst.
Nánari upplýsingar um Isavia má finna hér á heimasíðu okkar.
Frekari upplýsingar um störfin eða umsóknarferlið veita mannauðsráðgjafar Isavia á netfanginu [email protected]