Beint í efni
Keflavíkur Flugvöllur

Vilt þú taka þátt í að þróa leiðarkerfi Keflavíkurflugvallar?

Við leitum að árangursdrifnum viðskiptastjóra með sterka greiningarhæfni í einingu flugfélaga og markaðsmála. Starfið felur meðal annars í sér að eiga samskipti við flugfélög, greiningu viðskiptatækifæra og þróun flugleiða til og frá Keflavíkurflugvelli ásamt því að vinna að gerð farþegaspár fyrir Keflavíkurflugvöll.

Helstu verkefni:

  • Samskipti við flugfélög og úrvinnsla og eftirfylgni þarfa og óska
  • Þátttaka í leiðarkerfisþróun flugvallarins og sölusýningum
  • Söfnun, greining og miðlun tölfræðiupplýsinga
  • Þróun og gerð sölu- og markaðsáætlana fyrir flugfélög Keflavíkurflugvallar
  • Þátttaka í gerð farþegaforsenda og farþegaspá fyrir Keflavíkurflugvöll
  • Önnur tilfallandi verkefni

Hæfniskröfur:

  • Menntun á sviði viðskipta, rekstrarverkfræði eða önnur menntun sem nýtist í starfi
  • Góð tungumála kunnátta er æskileg, enska er nauðsynleg
  • Góð þekking á tölfræði og greiningu gagna er nauðsynleg
  • Reynsla af sölustörfum, þjónustu eða viðskiptatengdum störfum er æskileg
  • Geta til að byggja upp og viðhalda traustum samskiptum við viðskiptavini
  • Þekking á starfsemi flugvalla og/eða flugfélaga er kostur
  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni er skilyrði
  • Nákvæmni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð

Hjá KEF leggjum við ríka áherslu á virðingu og heiðarleika í samskiptum. Við gætum þess að viðhalda gleðinni, erum hugrökk, uppbyggileg og tökum ábyrgð á eigin frammistöðu. Fyrirtækið leggur sig fram við að stuðla að heilsu og vellíðan starfsfólks. Í mötuneytum okkar er boðið upp á hollan og góðan mat og allt starfsfólk hefur aðgang að heilsu- og líkamsræktarstöðvum sér að kostnaðarlausu.

Umsóknarfrestur er til og með 17. mars

Frekari upplýsingar um starfið veitir Grétar Már Garðarsson, forstöðumaður Flugfélaga og markaðsmála, í tölvupósti á netfangið [email protected]

Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið.

Við hvetjum áhugasama aðila til að sækja um óháð kyni og uppruna.

Sækja um