2,6 milljónir gesta yfir hásumarið

Yfir hásumarmánuðina júní, júlí og ágúst fóru samtals 2,6 milljónir gesta um Keflavíkurflugvöll (KEF) sem er 8,8% fækkun frá sama tímabili í fyrra.
Þegar mest lét flugu 26 flugfélög til 76 áfangastaða og eins og svo oft áður voru vinsælustu áfangastaðirnir Kaupmannahöfn, New York og London. Mest var umferðin um flugvöllinn þann 26. júlí þegar 31.738 farþegar fóru um KEF.
Brottfarir erlendra ferðamanna
Brottfarir erlendra ferðamanna frá Keflavíkurflugvelli voru um 830 þúsund á þessu þriggja mánaða tímabili. Er það um 2% fækkun frá sama tímabili í fyrra, samkvæmt tölum Ferðamálastofu.
Brottfarir Íslendinga voru tæplega um 187 þúsund yfir hásumarið, sem er fækkun upp á um 5,6% frá árinu á undan. Bandaríkjamenn voru langfjölmannasti hópur erlendra ferðamanna sem fóru frá landinu í júní, júlí og ágúst, en alls voru þeir 286 þúsund talsins. Það er um 34,5% allra brottfara erlendra ferðamanna. Áhugavert er að nánast sami fjöldi Bandaríkjamanna fór um flugvöllinn á sama tímabili í fyrra.
Þjóðverjar vor næst fjölmennastir erlendra ferðamanna á tímabilinu, eða um 66 þúsund talsins og þar á eftir komu Kanadamenn, sem voru ríflega 56 þúsund og Bretar sem töldu ríflega 51 þúsund.
Fyrstu átta mánuðir ársins
Þegar litið er á fyrstu átta mánuði ársins hafa um 1,56 milljónir erlendra farþega farið frá Íslandi. Það er svipaður fjöldi og á sama tímabili í fyrra, en brottförum erlendra farþega hefur fækkað um 1,0%.
Á sama tímabili hafa Íslendingar farið í um 435 þúsund ferðir utan. Það er 10,4% færri ferðir en á sama tímabili í fyrra.