KEF+ stöðug þróun og ábyrg uppbygging

Hér getur þú skyggnst inn í framtíð Keflavíkurflugvallar og fylgst með hvernig hann þróast
KEF stækkar

Verkefnin

Nýjar akbrautir, aukið rými, fleiri brottfararhlið, nýr töskusalur og allt hitt sem gerir Keflavíkurflugvöll enn betri.

Í dag var auglýst útboð fyrir endurnýjun öryggisleitar KEF.

Framkvæmdum við stækkun suðurbyggingar er lokið og hefur 1.900 fermetra stór viðbyggingin verið tekin í notkun. Stækkun Suðurbyggingar felur í sér betri aðstöðu fyrir farþega við brottfararhlið á báðum hæðum í austurenda Suðurbyggingar.

Í ár tók Keflavíkurflugvöllur í fyrsta sinn þátt í HönnunarMars með sýningunni „Nýjar tengingar hasla sér völl“, þar sem kastljósinu var beint að mikilvægi nýsköpunar og samstarfs í þróun framtíðarlausna.

Fyrstu farþegarnir fóru í gegnum nýju viðbótina við suðurbyggingu flugstöðvarinnar í gær, 15. apríl, þegar fram fór svokölluð ORAT prófun á farþegaflæðinu og innviðum.

Uppbygging Keflavíkurflugvallar og framkvæmdir henni tengdar vöktu töluverða athygli á stórsýningunni Verk og vit, en sýningarbás Isavia, Kadeco og sveitarfélaganna Reykjanesbæjar og Suðurnesjabæjar var vel sóttur alla sýningardagana.

Á dögunum fór fram ORAT borðprófun á einum áfanga svokallaðrar hringtengingar fyrir framan flugstöðina.

Keflavíkurflugvöllur er í stöðugri þróun og hafa ýmsar breytingar átt sér stað í verslunar- og veitingaframboði á síðustu mánuðum. Markmiðið er að bæta upplifun farþega og fjölga spennandi valkostum bæði fyrir brottfarar- og komufarþega.

Framkvæmdum á innra byrði suðurbyggingar á svæði sem kennt er við Stæði 10, lýkur í byrjun október.

Nýir sjálfsalar, verslun með bakkelsum, pítsum og öðru góðgæti og sælkeraverslun eru meðal nýjunga sem bættust við á Keflavíkurflugvelli fyrir ferðasumarið 2025. Flugvöllurinn er í stöðugri þróun til að sinna þörfum gesta sem eru fjölbreyttur og síbreytilegur hópur.

Vinna er hafin við hönnun fyrsta áfanga tengibyggingar milli norður- og suðurbygginga flugstöðvarinnar.

Uppbygging til framtíðar

Sjálfbærni

Við þróun Keflavíkurflugvallar er skýrum og mælanlegum sjálfbærnimarkmiðum fylgt til að lágmarka kostnað og umhverfisáhrif sem og efla nærsamfélagið.

Laus störf

Vilt þú taka þátt í upp­bygg­ingu og rekstri inn­viða?Vilt þú taka þátt í upp­bygg­ingu og rekstri inn­viða?

Við erum alltaf að leita að drífandi fólki til að taka þátt í þróun flugvallarins.

Saga KEF

Saga Keflavíkurflugvallar í máli og myndum.