Mikill áhugi á uppbyggingu KEF
Uppbygging Keflavíkurflugvallar og framkvæmdir henni tengdar vöktu töluverða athygli á stórsýningunni Verk og vit, en sýningarbás Isavia, Kadeco og sveitarfélaganna Reykjanesbæjar og Suðurnesjabæjar var vel sóttur alla sýningardagana.

Brynjar Vatnsdal, forstöðumaður þróunar hjá Isavia, stóð vaktina og útskýrði þróunaráætlun og framkvæmdastefnu fyrirtækisins fyrir gestum og gangandi.
Isavia er í fremstu röð íslenskra fyrirtækja þegar kemur að notkun þrívíddarlíkana og háþróaðrar tölvutækni við hönnun og framkvæmdir og kemur það reglulega fyrir að önnur fyrirtæki og stofnanir leiti til starfsmanna um það hvernig þau geti nýtt þessa tækni í sínum verkefnum.