Flugstöð Leifs Eiríkssonar opnuðFlugstöð Leifs Eiríkssonar opnuð
1987
Flugstöð Leifs Eiríkssonar opnaði árið 1987 og var þá 23 þúsund fermetrar. Sumum þótti það of mikið.
Árið 1987 urðu þáttaskil í flugsögu Íslands. Þá var frumvarp samþykkt á Alþingi sem tryggði nær fjórfalt fjármagn til flugsamgangna á Íslandi. Þar með hófst markviss uppbygging og endurbætur í þágu flugsamgangna, en árið áður fengu Íslendingar herflugvelli bandamanna í Reykjavík og Keflavík afhenta til eignar.
Reykingar bannaðar í alþjóðaflugiReykingar bannaðar í alþjóðaflugi
1996
Hér á árum áður fór fólk ekki í millilandaflug nema fá sér í glas, og var reykt um borð í flestum flugvélum.
Þegar leið á 9. áratuginn fóru flugfélög eitt af öðru að banna reykingar um borð í flugvélum sínum. Árið 1996 beindi Alþjóðaflugmálastofnunin þeim tilmælum til flugfélaga að reykingar yrðu bannaðar í öllu farþegaflugi í heiminum.
Suðurbygging tekin í notkunSuðurbygging tekin í notkun
2001
Um miðjan 10. áratuginn var afkastageta flugstöðvarinnar komin að þolmörkum. Þessi aukna þörf fyrir stækkun skrifaðist að miklu leyti á fulla aðild Íslands að Schengen samstarfinu, sem gerði kröfu um fullan aðskilnað farþega innan og utan svæðisins.
Suðurbyggingin, 17 þúsund fermetra viðbygging til suðurs, var því tekin í notkun þann 25. mars 2001 og heildarstærð flugstöðvarinnar orðin um 40 þúsund fermetrar.
Stækkun Norðurbyggingar til austurs og vestursStækkun Norðurbyggingar til austurs og vesturs
2004
Á árunum 2003 – 2004 fjölgaði farþegum á Keflavíkurflugvelli meira en almennt gerðist á flugvöllum austanhafs og vestan.
Til að bregðast við þessu var fyrsta skrefið að stækka innritunar- og móttökusali um 2 þúsund fermetra, og voru þessir salir teknir í notkun árið 2004.
Nýir sjálfsafgreiðslukassarNýir sjálfsafgreiðslukassar
2006
Flugstöðin opnuð formlega að nýju eftir stækkunFlugstöðin opnuð formlega að nýju eftir stækkun
2007
Á 20 ára afmæli flugstöðvarinnar, í apríl 2007, opnaði Valgerður Sverrisdóttir, þáverandi utanríkisráðherra, nýja 14 þúsund fermetra Suðurbyggingu formlega eftir framkvæmdir sem höfðu staðið yfir í fjögur ár á undan. Eftir þessar endurbætur var flugstöðin orðin 56 þúsund fermetrar.
Með þessari viðbyggingu töldu sérverslanir flugstöðvarinnar tíu, fríhafnarverslanir þrjár, og veitinga- og kaffihús ótalmörg.
Eldgos í EyjafjallajökliEldgos í Eyjafjallajökli
2010
Vorið 2010 hófst eldgos í Eyjafjallajökli sem setti Ísland rækilega á heimskortið þegar það bakaði ferðalöngum víða um heim vandræði. Gosið stóð í rúman mánuð og öskuskýið sem myndaðist gerði það að verkum að loka þurfti loftrými yfir Norður-Atlantshafi ásamt mörgum löndum Evrópu í fimm sólarhringa.
Á sama tíma var umfjöllunin um gosið gríðarleg og á árunum eftir fjölgaði ferðamönnum á methraða sem gerði það að verkum að ferðaþjónustan varð einn af mikilvægustu máttarstólpum íslensks hagkerfis.
Stækkun Suðurbyggingar hefstStækkun Suðurbyggingar hefst
2013
Keflavíkurflugvöllur ratar á lista yfir bestu flugvelli heimsKeflavíkurflugvöllur ratar á lista yfir bestu flugvelli heims
2014
Fjarstæði til austurs byggðFjarstæði til austurs byggð
2015
Á árunum 2015 - 2018 stóðu yfir ýmsar framkvæmdir á Keflavíkurflugvelli. Fjarstæði til austurs af flugstöðinni voru byggð auk þess sem ný settjörn var byggð til hreinsunar á ofanvatni af flughlaði.
Megintilgangur settjarna á Keflavíkurflugvelli er að safna vatni, tefja það á leið sinni og hreinsa það. Hreinsunin er á þann veg að mengandi efni fljóta upp, falla til botns eða síast í gegnum jarðveg.
Stækkun Suðurbyggingar til norðursStækkun Suðurbyggingar til norðurs
2016
Árið 2016 hófust framkvæmdir á stækkun Suðurbyggingar til norðurs en tveimur árum áður hafði hafist stækkun á byggingunni til vesturs.
Þetta fól meðal annars í sér stækkun á landamærasal, mun stærra biðsvæði og aukna fjölbreytni í verslunar- og veitingasvæði á 1. hæð.
Stækkuð Suðurbygging vígðStækkuð Suðurbygging vígð
2018
Framkvæmdir við nýja akbrautFramkvæmdir við nýja akbraut
2022
Stækkun Suðurbyggingar til austursStækkun Suðurbyggingar til austurs
2023
Nú er unnið að stækkun Suðurbyggingar á Keflavíkurflugvelli. Það verk mun skila meðal annars bættri aðstöðu farþega við brottfararhlið í austurenda Suðurbyggingar, aukna fjölbreyttni í verslun og veitingum og stærra biðrými fyrir farþega.
Framkvæmdir hefjast árið 2023 og stendur til að ljúka þeim árið 2024.
Nýr töskusalurNýr töskusalur
2023
Áframhaldandi framkvæmdir við AusturálmuÁframhaldandi framkvæmdir við Austurálmu
2024
Þróunaráætlun KeflavíkurflugvallarÞróunaráætlun Keflavíkurflugvallar
2045