Útboð fyrir endurnýjun öryggisleitar er hafið

Í dag var auglýst útboð fyrir endurnýjun öryggisleitar KEF. Öllum búnaði á öryggisleitarsvæðinu verður skipt út fyrir nýjan búnað, þar á meðal búnaði fyrir gegnumlýsingu, færiböndum, og öðrum innviðum. Með þessum nýja búnaði verður öryggisleitin einfaldari og þægilegri fyrir gesti KEF.
Verkefnið felur í sér heildarendurnýjun öryggisleitarsvæðisins á Keflavíkurflugvelli, svæðisins sem gestir flugvallarins fara í gegnum öryggisleit eftir innritun. Þessi endurnýjun skiptist í tvo meginþætti. Annars vegar verður allur búnaður öryggisleitarinnar endurnýjaður með nýjustu tækni sem notuð er á leiðandi flugvöllum í Evrópu og hins vegar verður öryggisleitarsalurinn endurbættur með áherslu á bjartara og opnara umhverfi og betri hljóðvist.
Framkvæmdirnar verða unnar í tveimur áföngum sem verða tímasettir á þeim árstíma þegar umsvif á flugvellinum eru minnst. Áætlað er að framkvæmdum ljúki á árinu 2028.
Nánari upplýsingar um verkefnið má finna hér.