
Endurnýjun öryggisleitarsvæðisEndurnýjun öryggisleitarsvæðis
Bjartara, þægilegra og skilvirkara öryggisleitarsvæði
Unnið er að heildarendurnýjun öryggisleitarsvæðisins á Keflavíkurflugvelli, svæðisins sem gestir flugvallarins fara í gegnum öryggisleit eftir innritun. Verkefnið skiptist í tvo meginþætti. Annars vegar verður allur búnaður öryggisleitarinnar endurnýjaður með nýjustu tækni sem notuð er á leiðandi flugvöllum í Evrópu. Hins vegar verður öryggisleitarsalurinn endurbættur með áherslu á bjartara og opnara umhverfi og betri hljóðvist.
Það skiptir flugvallargesti miklu máli að öryggisleit sé bæði skilvirk og einföld og því er mikilvægt að aðstaðan sé björt, þægileg og vel skipulögð. Markmiðið er að bæta upplifun gesta, styðja við áframhaldandi vöxt og tryggja að KEF uppfylli nýjustu kröfur um öryggi og þjónustu.
Bætt upplifun í öryggisleit
Öllum búnaði á öryggisleitarsvæðinu verður skipt út fyrir nýjan búnað, þar á meðal búnaði fyrir gegnumlýsingu, færiböndum, og öðrum innviðum.
Með þessum nýja búnaði verður öryggisleitin einfaldari og þægilegri fyrir gesti KEF. Einn helsti ávinningurinn er að hann getur opnað á þann möguleika að skilja raftæki og vökva eftir í töskum við gegnumlýsingu.
Endurnýjun á búnaði snýr einnig að því að uppfylla nýjar öryggiskröfur. Nýi búnaðurinn verður af nýjustu kynslóð öryggisskimunar og uppfyllir C3-staðal ECAC (European Civil Aviation Conference). Það er tækni greinir sprengiefni, vopn og önnur hættuleg efni með meiri nákvæmni en eldri kerfi.
KEF hefur um árabil verið meðal þeirra flugvalla sem ná bestum árangri þegar kemur að stuttum biðtíma í öryggisleit. Nýi búnaðurinn mun styðja við þann árangur auk þess að bæta upplifun farþega.
Bjartara og þægilegra
Öryggisleitarsvæðið verður endurnýjað í heild sinni með það að markmiði að skapa bjartara, opnara og þægilegra umhverfi fyrir gesti.
Gerðar verða breytingar á lofti og veggjum til að hleypa meiri dagsbirtu inn í rýmið. Innréttingar og önnur aðstaða verður jafnframt endurnýjuð með það að markmiði að gera rýmið hlýlegra, nútímalegra og þægilegra fyrir gesti.

Framkvæmdir í áföngum
Verkefnið verður skipulagt þannig að áhrif á daglega starfsemi flugvallarins og upplifun gesta verði sem minnst. Framkvæmdirnar verða unnar í tveimur áföngum sem verða tímasettir á þeim árstíma þegar umsvif á flugvellinum eru minnst. Áætlað er að framkvæmdum ljúki á árinu 2028.
Fyrst verður ráðist í endurbætur á húsnæði og aðstöðu öryggisleitarinnar. Að því loknu verður núverandi búnaður fjarlægður og nýr búnaður settur upp.
Markmiðið á Keflavíkurflugvelli er alltaf að lágmarka áhrif framkvæmda á flugvallargesti og starfsemi vallarins, því er mikilvægt að útfæra skipulagið með þetta í huga. Þá var einnig mikilvægt að undirbúa vel útboð á búnaði fyrir öryggisleitina, enda er um að ræða flókinn búnað.
Verkefnið í tölum
Meðalfjöldi gesta sem fara í gegnum öryggisleit á hverjum degi síðastliðna 12 mánuði:
- Júní – ágúst: 11.392 farþegar á dag
- Sept – nóv: 7.983 farþegar á dag
- Des – feb: 5.823 farþegar á dag
- Mars – maí: 7.044 farþegar á dag
Biðtími í öryggisleit Keflavíkurflugvallar er mismunandi eftir því hvort um háannatíma ræðir eða ekki, en meðalbiðtími heilt yfir er einungis um 3 mínútur á flugvellinum.
Staða verkefnis
Vetur 2025:
- Hönnun og undirbúningur framkvæmda við öryggisleitarsvæðið.
2026:
- Undirbúningur útboðs.
- Útboð á nýjum búnaði hófst í ágúst. Áætlað að útboðsniðurstaða liggi fyrir á fyrri hluta árs 2027.