Opnun í suðurbyggingu handan við hornið

Fyrstu farþegarnir fóru í gegnum nýju viðbótina við suðurbyggingu flugstöðvarinnar í gær, 15. apríl, þegar fram fór svokölluð ORAT prófun á farþegaflæðinu og innviðum.

Fyrstu farþegarnir fóru í gegnum nýju viðbótina við suðurbyggingu flugstöðvarinnar í gær, 15. apríl, þegar fram fór svokölluð ORAT prófun á farþegaflæðinu og innviðum.

ORAT (Operational Readiness, Activation & Transition) er alþjóðlega viðurkennd aðferðafræði sem miðar að því að tryggja að mannvirki, tæknikerfi, verkferlar og mannauður séu fullkomlega tilbúin þegar nýtt húsnæði eða ný starfsemi fer í notkun.

Með aðferðinni er áhersla lögð á heildstæða verkefnastjórnun, skýra ábyrgðarskiptingu og markvissa prófun á öllum lykilþáttum framkvæmdar áður en rekstur hefst.

Í þetta sinn var ákveðið að opna hliðin fyrir raunverulegum farþegum og fylgjast með þeim og upplifun þeirra, en stundum hefur verið brugðið á það ráð að fá starfsfólk af flugvellinum til að leika farþega í prófunum sem þessum.

Prófunin gekk afar vel og er ekkert því til fyrirstöðu að neðri hæðin verði tekin í fulla notkun á allra næstu dögum. Efri hæðin fylgir svo í kjölfarið, en gert er ráð fyrir opnun þar á næstu vikum, einnig að lokinni prófun.

Nánar má lesa um verkefnið hér.