Flugvélastæði uppfærð fyrir næstu framkvæmdir

Jarðvinna og uppsetning nýrra innviða er nú hafin við flugvélastæði 3 og 5 á Keflavíkurflugvelli, en stæðin standa vestan við tengiganginn milli norður- og suðurbygginga flugstöðvarinnar. Gerð verða ný flughlöð, nýir innviðir og aðstaða fyrir afgreiðslu flugvéla verður uppfærð við þessi stæði.
Áður en framkvæmdir hefjast við nýja tengibyggingu verður reistur tímabundinn tengigangur milli bygginganna tveggja og er nú unnið að því að gera þær breytingar á nærliggjandi flughlöðum sem nauðsynlegar eru til að þau geti áfram sinnt flugvélum og farþegum á meðan á þeim framkvæmdum stendur.

Markmið verkefnisins er að skapa nauðsynlega flughlaðsaðstöðu á meðan framkvæmdum við tengibygginguna stendur, þar á meðal ný tengistæði, farþegabrýr, tengikerfi fyrir flugvélar, eldsneytiskerfi, veitukerfi og aðstöðu fyrir rekstur á flughlaði. Verkefnið eykur afkastagetu flugvallarins, bætir flæði farþega og starfsemi á flughlaði og leggur grunn að frekari uppbyggingu á svæðinu í framtíðinni.
Við breytingarnar fækkar flugvélastæðunum um eitt, en þess í stað verður stæði 3 stækkað og þar verður hægt að afgreiða tvær smærri vélar eða eina stærri.
Framkvæmdirnar nú snúa aðeins að stæðum 3 og 5, en framkvæmdir við stæði 4 hefjast síðar og munu framkvæmdirnar standa yfir næstu árin.