Tollagangur endurbættur

The corridor used by arriving passengers to leave the baggage reclaim hall has been expanded, upgraded, and slightly relocated.

Gangurinn sem komufarþegar fara um á leið sinni úr töskusal hefur verið stækkaður, endurbættur og færður lítillega til. Breytingarnar voru gerðar með upplifun farþega í huga en svara einnig þörfum vaxandi flugvallarstarfsemi.

Samhliða framkvæmdum við tollganga var fordyri flugstöðvarinnar komumegin stækkað og aðstaða fyrir bílaleigur og rútufyrirtæki færð. Saman skapa þessar breytingar betra flæði og meira svæði fyrir komufarþega og aðra sem um svæðið fara.