Uppbygging eykur gæði þjónustunnar

Breytingar sem gerðar hafa verið í austurhluta suðurbyggingar eru dæmi um það hvernig uppbygging á Keflavíkurflugvelli skilar sér í betri þjónustu og betri aðstöðu fyrir farþega. Reynslan af því verkefni verður notuð til að bæta þjónustu og aðstöðu víðar í flugstöðinni, m.a. hinum megin í suðurbyggingunni, í vesturhluta hennar.
Brynjar Vatnsdal, forstöðumaður þróunar hjá Isavia, segir að áhrifin séu meðal annars þær að brottfararfarþegar hafi meira pláss fyrir sig og farangurinn. Í suðurbyggingunni þýði það m.a. að biðraðir verði ekki eins áberandi á ganginum. "Það verður auðveldara að finna hliðið sem þú ert að fara í. Það verður meira pláss. Það verður vonandi sæti fyrir þig og það verður tengill í sætinu fyrir þig að hlaða fartölvuna. Þannig að þetta verður bara eins og við viljum sjá hliðin vera. Ég vona að farþegarnir sjái mjög hratt breytinguna."