Ný aðstaða fyrir bílaleigur á KEF

Bílaleigur eru komnar á nýtt og betra þjónustusvæði í flugstöðinni.

Bílaleigur eru komnar á nýtt og betra þjónustusvæði í flugstöðinni. Nánar tiltekið í norðausturhorni í biðsalnum, komu megin.

Framkvæmdum við þessa breyttu og endurbættu aðstöðu er nú lokið. Með henni fæst stærra svæði og betra flæði í kringum aðstöðu bílaleiga en markmið hönnunar svæðisins var að bæta þjónustu og upplifun, bæði fyrir gesti og starfsfólk.

Við breytingarnar fjölgaði bílaleigum með aðstöðu í flugstöðvarbyggingunni úr þremur í fjórar og nú eru þar Avis, Europcar/Höldur, Hertz og Sixt.